Skinfaxi - 01.08.1974, Blaðsíða 18
F ullorðinsf ræðsla
Eins og flestum mun kunnugt, þá hefur
fullorðinsfræðsla á íslandi af einhverjum
ástæðum, verið látin sitja á hakanum og
lítið verið aðhafst í þeim málum í þágu
almennings. Það má kalla ýmis konar
námskeiðshald fullorðinsfræðslu, en flest
hafa þessi námskeið hingað til verið hald-
in fyrir ákveðnar starfsstéttir í þjófélag-
inu, sem ekki hafa átt annarra kosta völ
en að sækja þau til þess hreinlega að geta
haldið starfi sínu.
Námsflokkar hafa allvíða risið upp en
hafa átt við mikla fjárhagsörðugleika að
etja og sumstaðar hreinlega lagst niður
vegna þessa.
Nú á síðustu árum hefur skólakerfið
lítillega verið opnað, þannig að komin
eru tengsl milli gagnfræðamenntunar og
framhaldsmenntunar og stuðlar það
verulega að því að fleiri njóta nú fram-
haldsnáms við sitt hæfi. Þá gerðist það
ekki alls fyrir löngu að hafin var kennsla
fyrir fullorðna undir stúdentspróf.
Ekki ber að amast við þessari viðleitni
hins opinbera, en okkur, sem búum í
dreifbýlinu, verður á að spyrja: — Hvar
eru námsflokkar, námskeið og kennsla
undir stúdentspróf, sem hentar okkur?
Hvar er það í hinum dreifðu byggðum
landsins, sem þessum málum er sinnt?
Hver á að hafa forystu um þetta starf?
Ilver á að borga kostnað, sem af ]dvÍ leið-
ir? Vlenn hugleiða hvort ekki sé hættu-
lega ýtt undir alvarlegt misrétti þegn-
anna, ekki bara í skyldunámi heldur einn-
ig og ekki síður í sambandi við mögu-
leika hinna fullorðnu til menntunar.
Hinn 14. janúar s.l. komu saman að
Leirárskóla í Borgarfirði formenn bænda-
samtaka, kvenfélaga og ungmennafélaga
sunnan Skarðsheiðar, auk áhugamanna,
formanns skólanefndar Leirárskóla og
skólastjóra. Á fundinum var rætt um nám-
skeiðhsald þessara aðila og þörfina fvrir
samvinnu og samræmingu og meira hnit-
miðað starf. Voru fundarmenn sammála
um að setja bæri á stofn fræðslunefnd,
sem hefði það verksvið að undirbúa og
sjá um framkvæmd almennrar fræðslu-
starfsemi í Borgarfirði sunnan Skarðs-
heiðar.
Nefndinni var falið:
1. að gera skoðanakönnun um, hvaða
fræðslustarfsemi óskað er eftir.
2. að ákveða hvaða námskeið skuli
haldin og hvar.
3. að ákveða tíma og ráða kennara.
4. að sjá um að afla fjár og annast
greiðslur vegna starfseminnar.
Auk ýmissa námskeiða og félagsstarf-
semi, sem þegar var í gangi er nefndin
18
SKINFAXI