Skinfaxi - 01.08.1974, Blaðsíða 21
ÍSLANDSGLÍMAN
1974
Hjálmur Sigurðsson
Hjálmur Sigurðsson, Ungmennafélag-
inu Víkverja, varff glímukappi fslands,
Hjálmur hlaut einnig bikar þann, sem
veittur er fyrir fagra glímu.
fslandsglíman, hin 64. í röðinni, var
háð í íþróttahúsi Vogaskólans laugar-
daginn 27. apríl 1974. Þátttakendur voru
6. Prá Héraðssambandi Suður-Þingeyinga
(HSÞ) 2, frá Glímufélaginu Ármanni (Á)
l, frá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur
(KR) 1 og frá Ungmennafélaginu Vik-
verja (V) 2.
Íslandsglíman var sett af Kjartani
Bergmann Guðjónssyni, sem minntist
m. a. fyrstu Íslandsglímunnar 1906 og
aðdraganda hennar. Glímustjóri var
Ólafur H. Óskarsson. Falldómarar: Haf-
steinn Þorvaldsson yfirdómari og Ey-
steinn Sigurðsson og Sigtryggur Sigurðs-
son meðdómarar.
Fegurffarglímunefnd: Guðmundur Ág-
ústsson, Ólafur Guðlaugsson, Rúnar
Guðmundsson. Guðmundur Ágústsson,
f. v. glímukappi íslands afhenti verðlaun.
Auk hinna ákveðnu verðlauna, sem
veitt eru á fslandsglímunni. Grettisbelts-
ins og bikars fyrir fagra glímu, voru að
þessu sinni einnig veitt þrenn verðlaun
fyrir kappglimuna og fegurðarglímnua.
Úrslit í Þessari 64. ísiandsglímu urðu
þau, að Hjálmur Sigurðsson, Víkverja,
sigraði og hlaut 5 vinninga, lagði alla
keppinauta sína. — Hann hlaut einnig
flest stig 38 2/3 fyrir fagra og góða glimu
og þar með bikar þann, sem um er
keppt.
Glímuúrslit:
Hjálmur Sigurðsson, V ........... 5 v.
Pétur Yngvason, V ............... 4 —
Jón Unndórsson, KR............... 3 —
Ingi Yngvason, HSÞ 2 —
Guðmundur F. Halldórsson 1 —
Kristján Yngvason, HSÞ 0 —
Stigafjöldi fyrir fagra glímu:
Hjálmur Sigurðsson
Pétur Yngvason
Ingi Yngvason ...........
Guðmundur P. Halldórsson
Kristján Yngvason .......
Jón Unndórsson
34 2/3 stig
34 — —
33 — —
29 — —
28 2/3 —
281/3 —
SKINFAXI
21