Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1974, Page 4

Skinfaxi - 01.12.1974, Page 4
14 ára heimsmethafi Við höfum stundum kynnt komungar sundkonur úr ýmsum heimshlutum, en telpurnar hafa verið iðnar við að setja heimsmet undanfarin ár. Á myndinni er þýska stúlkan Karla Linke sem á heims- metið í 200 m. brinusundi kvenna. Hún er aðeins 14 ára gömul, 1,78 m. á hæð, og hún varð Evrópumeistari í sumar. Nánar segir frá EM í sundi á bls. 21. Landsmótið kynnt Stöðugt styttist til 15. landsmóts UMFÍ sem háð verður á Akranesi í sumar. Landsmótsnefnd er að hefja víðtæka kynningarstarfsemi fyrir landsmótið, sjá bls. 31. FORSÍÐUMYNDIN er af 3. fl. Umf. Breiðabliks i Kópavogi er hann tók við verðlaunum á íslandsmót- inu. Það var mikill hátíðardagur er 3., 4. og 5. flokkur Breiðabliks unnu íslands- meistaratitil á sama degi í september, enda ærin ástæða fyrir þá Kópavogsmenn að fagna svo einstæðum árangri. Enginn þessara flokka tapaði leik í mótinu. Fremst á myndinni er Valdimar Valdi- marsson fyrirliði 3. flokks Breiðabliks með bikarinn, en lengst til hægri aftast er þjálfari liðsins Ásgeir Þorvaldsson. (Ljósm.: Gunnar Steinn). V asasöngbókin Jónas Ingimundarson hefur séð um nýja útgáfu á Vasasöngbókinni fyrir UMFÍ. Vasasöngbókin ávann sér miklar vinsældir fyrir um 30 árum þegar Þór- hallur heitinn Bjarnason gaf hana út. Hann arfleiddi UMFÍ að útgáfunni. Hin nýja útgáfa Jónasar er mjög vönduð og ætti að bæta úr brýnni þörf. Viðtal við Jónas er á bls. 8. H appdr ættistek j ur Héraðssambandið Skarphéðinn fékk nær 130 þús. kr. í sölulaun fyrir Lands- happdrætti UMFÍ. UMSE fékk 110 þús. og UMSK 97 þús. kr. Of margir sam- bandsaðilar eru áhugalitlir um að not- færa sér þessa góðu tekjumöguleika. Söluskrá og vinningaskrá ásamt reikn- ingsyfirliti er á bls. 41-42. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.