Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 27
ANNÁLL
BRAUTRYÐJANDANS
í minningu Guðbrands Magnússonar
Guðbrandur Magnússon
Þegar Guðbrandur Magnússon lést í
sumar, hvarf af sjónarsviðinu einn ötul-
asti brautryðjandi ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Guðbrandur lést í hárri elli,
87 ára gamall, en alla tíð var hann léttur
á fæti og léttur í lund, hugmyndaríkur
og starfsglaður hugsjónamaður.
Störf Guðbrands fyrir ungmennafélög-
in á öndverðri öldinni eru óvenjulega
margþætt og merkileg. Þau vann hann
fyrst og fremst á árunum 1905—1914.
Það er líkast því að hann beri með sér
kyndil bjartsýni og framkvæmdasemi,
hvarvetna vekur hann upp áhuga, alls
staðar er hann í fararbroddi og fær miklu
til leiðar komið með eldmóði sínum og
ósérplægni.
Hann er einn af stofnendum Ung-
mennafélags Akureyrar í ársbyrjun 1906
ásamt Jóliannesi Jósepssyni, Þórhalli
Bjamasyni og fleiri brautryðjendum. Til
Akureyrar kom hann 1905 frá Seyðisfirði
þar sem hann hafði numið prentiðn.
Síðar á árinu 1906 er Guðbrandur
kominn til Reykjavíkur með þann fasta
ásetning að stofna þar ungmennafé-
SKINFAXI
lag. Og hann stofnaði Ungmennafélag
Reykjavíkur þegar um haustið þetta sama
ár með áhugasömu ungu fólki í bænum.
UMFR varð strax kraftmikið og lífvæn-
legt félag.
Ungmennafélagshreyfingin varð bar-
baráttutæki þeirrar þjóðfélagslegu ólgu
sem bjó með þjóðinni á þessum ámm.
Hreyfingin reisti merki baráttunnar gegn
erlendum yfirráðum og fyrir þjóðlegu
sjálfstæði. Hún varð sameiningartákn
unga íólksins í öllum landshlutum og fé-
lagslegur vettvangur þess í gleði og al-
vöru. Hinn skjóti framgangur hreyfing-
arinnar er ekki síst að þakka mörgum
hæfum og ódeigum forystumönnum.
Einn þeirra var Guðbrandur Magnússon.
Sumarið 1907 er hann staddur á Þing-
völlum ásamt sjö öðrum forystumönnum
ungmennafélaganna í ýmsum landshlut-
um í því skyni að stofna landssamtök
ungmennafélaganna. Það var hátíð á
Þingvöllum í tilefni heimsóknar Friðriks
8. konungs Danmerkur og íslands. En
fyrir ungmennafélögunum vakir meira en
það eitt að treysta heildarskipulag sitt.
27