Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 29
MEÐ VORBLÆNUM
Bjarni V. Guðjónsson
BJARNI VALTÝR
GUÐJÖNSSON.
VORBLÆNUM
II, SAGA U.M.F.
BJARNAR HÍTDÆLAKAPPA
1912 1972
Forsíöa hinnar nýju bókar. Með vorblænum
er myndarlegt framlag til félagsmálasögu
ungmennafclagshreyfingarinnar.
Komin er lit bókin Með vorblænum,
en það er saga Umf. Bjamar Hítdæla-
kappa í Hraunhreppi á Mýmm 1912—
1972. Bókin er skrifuð og rituð í tilefni
60 ára afmælis félagsins. Höfundur er
Bjarni Valtýr Guðjónsson á Svarfhóli, en
hann var formaður félagsins um nær
tveggja áratuga skeið.
Þetta er mikið rit og vandað. Þar er
skilmerkilega rakin saga félagsins frá
upphafi. Þetta er mikilsvert framlag til
félagsmálasögu byggðarinnar og gefur
glögga mynd af fjölþættu starfi ung-
mennafélagsins í meðbyr og andbyr. Við
lestur slíkrar bókar ætti mönnum að vera
ljósara en áður hversu geysimikilvægt
starf ungmennafélaganna hefur verið fyr-
ir menningarlíf sveitanna á þessari öid.
í bókinni eru einnig viðtöl við ýmsa af
fyrstu forystumönnum félagsins og er
góður ávinningur að þeim. M. a. er þar
viðtal við fyrsta formann félagsins, Jó-
hann Jónatansson frá Hjörsey sem nú
er nýlátinn.
Bókin er 311 blaðsíður, auk allmargra
myndasíðna, prentuð í Prentsmiðju Akra-
ness.
SKINFAXI
29