Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 15
Fréttabréf frá
U ngmennaf élagi
Átti 25 ára afmæli í haust
Ýmislegt hefur verið á dagskrá hjá
UMFK í sumar, sumt gamalt og rótgróið
en einnig margt annað sem ekki hefur
verið áður.
Knattspyma.
Mest öll knattspymustarfsemi UMFK
fer fram undir merki ÍBK á sumrin, þar
á meðal Landsmót KSÍ og önnur meiri-
háttar mót. En undanfarin 10 ár hefur
UMFK átt kjarnann í mfl. ÍBK og svo
var einnig í sumar. Fjórir félagar úr
UMFK voru fastir menn í landsliði ís-
Jón Guðlaugsíon, form. judodeildar UMFK,
á æskulýðsmóti í Noregi í sumar.
SKINFAXI
Keflavíkur
lands í knattspyrnu, þeir Þorsteinn Ól-
afsson, Karl Hermannsson, Grétar Magn-
ússon og Gísli Torfason, en þeir Guðni
Kjartansson og Ástráður Gunnarsson sem
báðir vom styrkar stoðir í landsliðinu
voru að mestu frá í surnar vegna meiðsla.
í ágúst sl. fóm 2. og 3. fl. UMFK í knatt-
spyrnu til Vestfjarða í keppnisferðalag og
kepptu á ísafirði, Súgandafirði og Bol-
ungarvík. UMFK tók þátt í forkeppni
UMFÍ í knattspymu og keppti við
UMFG, UMSK oð USVS og vann alla
þessa leiki með nokkrum yfirburðum.
Formaður knattspymudeildar UMFK er
Haukur Hafsteinsson.
Handknattleikur.
Handknattleikur var lítillega á dagskrá
í sumar hjá mfl. kvenna vegna forkeppni
Landsmóts UMFÍ í handknattleik. Keppt-
um við gegn UMFN sem við töpuðum
fyrir og svo við UMFS sem við unnum.
Formaður handknattleiksdeildar UMFK
er Guðbjörg Jónsdóttir.
Júdódeild UMFK
Ný deild var stofnuð innan félagsins
sl. vetur, júdódeild UMFK. Strax á
fyrsta vetri eignaðist félagið 3 íslands-
meistara, 2 í unglingaflokki og einn í
flokki fullorðinna. Tveir júdómenn úr
15
STOFNAD ». SIPT'