Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 38
manna og eru UMFG og formanni þess,
Gunnari Tómassyni færðar þakkir fyrir
gott starf að þeim málum.
Að fundi loknum buðu tvö atvinnu-
fyrirtæki í Grindavík, Þorbjöm hf. og
Fisknes hf. fundarmönnum til kvöldverð-
ar. Bæjarstjóm Grindavíkur og fyrirtækj-
unum tveim var færður vináttufáni
UMFI að gjöf, sem þakklætisvottur af
hálfu samtakanna fyrir þá vináttu og
höfðingsskap sem þau og Grindvíkingar
sýndu á þessum fyrsta sambandsráðs-
fundi sem háður er í Grindavík.
Meðan á kvöldverði stóð fæddist eftir-
farandi vísa hjá Sigurði Geirdal:
í höfuðstöðvum höfum við
heldur fátt að bauka
en kaffi bæði og kvenfólkið
kjósum við að auka.
Ó. O.
SKÁKÞING
UMFÍ
1974
Úrslit á skákþingi UMFÍ 1974 voru
háð að Álfhólsvegi 32 i Kópavogi 2.—3.
nóvember i umsjón Ungmennasambands
Kjalarnesþings. Skákstjóri var Sævar
Bjarnason.
Keppnin vjir mjög jöfn, og voru úrslit
ekki ráðin fyrr en síðustu skákinni lauk.
Sveit UMSK sigraði.
Þetta var í 6. sinn sem keppt var um
Skinfaxastyttuna, og hefur skáksveit
UMSK sigrað siðustu fimm árin. í sveit
UMSK að þessu sinni voru Júlíus Frið-
jónsson, Björn Halldórsson, Harvey
Georgsson og Ingimar Jónsson.
Gunnar Sveinssin gjaldkeri UMFÍ af-
henti sigursveitinni verðlaun í lok móts-
ins.
Það voru skáksveitir UMSK, HSK, UÍA
og USAH sem kepptu til úrslita á skák-
þinginu að þessu sinni. Vinningar féllu
sem hér segir:
1. U.M.S.K............. 7y2 vinninga
2. -3. H.S.K............. 6V2 vinninga
2.-3. U.Í.A.............6^/2 vinninga
4. U.S.A.H............. 4 vinninga
Skrá um viðureignir í úrslitakeppninni
fer hér á eftir:
38
SKINFAXI