Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1974, Page 5

Skinfaxi - 01.12.1974, Page 5
V AS ASON GBOKIN Söngur og söngiðkan hefur frá fyrstu tíð verið talsverð hjá ungmennafélögun- um, og framan af árum var það alltaf föst venja að hefja ungmennafélagsfundi með því að syngja. Sömuleiðis var það viðtekin venja á öðrum samkomum félag- anna að taka lagið, þegar tækifæri gafst. Allvíða munu félögin hafa gengist fyrir skipulögðum söngæfingum undir leið- sögn kennara, og í framhaldi af því stofn- að söngkóra, bæði karlakóra, blandaða kóra og söngkvartetta. Uppistaðan í skemmtidagskrá ung- mennafélaga hefur jafnan verið söngur í einhverri mynd, og í ferðalögum íþrótta- fólks sem og annarra félagshópa hefur mikið verið sungið. Það mun líka sam- dóma álit allra sem þátt taka í félags- starfi að ekkert tengi fólk betur saman en sameiginleg söngiðkan, ekkert lyftir félagsandanum betur en söngur. í kjöl- far hans fylgir gleði og öll tjáning ein- staklingsins verður opnari og auðveldari. Á undanfömum ámm hefur mjög skort að til væri hentug og aðgengileg söngbók til nota í almennu félagsstarfi, þar sem finna mætti kjarna þeirra sönglaga sem SKINFAXI sungin em við þau tækifæri sem ég hef nefnt hér að framan. Það var því gleði- efni þegar upplýst var að UMFÍ hefði verið arfleitt að útgáfu Vasasöngbókar- innar, sem Þórhallur heitinn Bjarnason prentari gaf út hér fyrr á ámm við mikl- ar vinsældir. Stjóm UMFÍ hóf því að vinna að söngbókarmálinu, og lenti það í verka- hring formanns að hefja undirbúnings- störf að útgáfu bókarinnar. Hafin var almenn söfnun söngtexta, og leitað til allmargra aðila í því sambandi. Undirritaður safnaði þessu öllu saman, hugsanlega nothæfu og ónothæfu, og raðaði því í möppu með efnisyfirliti í stafrófsröð. Á þessu stigi málsins kom til liðs við okkur í söngbókarmálinu Jónas Ingi- mundarson, þváerandi skólastjóri Tón- listarskóla Árnessýslu, og vil ég meina að það hafi verið mikið lán fyrir samtökin og útgáfuna. Jónas var ráðinn söngbókar- stjóri og honum gefnar frjálsar hendur um gerð bókarinnar og efnisval, að sjálf- sögðu með góðu samstarfi við stjóm UMFÍ. Valdi Jónas síðan um 200 söng- 5

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.