Skinfaxi - 01.12.1974, Page 14
skólanna og annars starfsliðs þeirra á
gildi félagsmálafræðslunnar, en eins og
vitað er hefur sá þáttur fræðslunnar verið
gjörsamlega vanræktur.
Endurskoðun námsefnis — framhalds-
fræðsla.
Eins og áður segir hefur fengist mikil
reynsla í félagsmálafræðslunni og mjög
nauðsynlegt að vinna upp nýtt námsefni
og breyta kennsluaðferðum. Fyrir liggur
reynsla í kennslu í skólum inn í náms-
skránni og utan hennar bæði sem val-
grein og tómstundagaman svo og kennsla
í skólum án verulegra tengsla við skól-
ann svo og almenn námskeið hjá marg-
víslegum ungmenna- og íþróttafélögum
af flestum stærðum.
í Ijós hefur komið að stærstu félögin
eru verst á vegi stödd hvað varðar fé-
lagslega virkni hins almenna félaga og
sannast það best á því að flestir okkar
hæfustu félagsmálakennarar hafa komið
frá litlu félögunum og virlcni þeirra al-
mennt meiri en hinna.
Miðað við námsefnið og kennsluað-
ferðir í Félagsmálaskólanum nú hafa
litlu félögin notið þeirrar fræðslu mun
betur en þau stóru, vegna þess að þar
er hver einn félagsmaður langtum virk-
ari félagslega en í hinum fjölmennari. Á
þeim stöðum sem fræðslan hefur verið
hvað mest, s.s. hjá UMSK, er árangur
hennar að koma í Ijós núna eftir á fjórða
ár og sannar það hina brýnu þörf félags-
málafræðslunnar.
Nýir þættir — tilraunakennsla
Á vegum UMFÍ hefur farið fram til-
raunakennsla í Bamaskóla Garðahrepps
14
svo og gagnfræðaskólunum í samráði við
félagsráðgjafa Garðahrepps, Sigfús John-
sen. Er nú unnið að búningi efnis fyrir
bamaskólastigið með hliðsjón af reynslu
sem fengist hefur af þeirri kennslu og
í Bamaskóla Selfoss og er vonast til að
það muni liggja fyrir fljótlega eftir ára-
mótin. í Gagnfræðaskóla Garðahrepps
verður í fyrsta skipti tekið sérstakt próf í
félagsmálum en námsgreinin er valgrein
og er tekið tillit til félagslegra starfa
nemenda í skólanum svo og almennrar
virkni á námskeiðinu.
Fræðslunni er skipt niður í 5 stig og
hefjast þau í barnaskólanum og lýkur
með sérhæfingarvali eftir frjájsu vali og
almennri kynningu á félagslegri upp-
byggingu þjóðfélagsins í heild.
I. stigi í báðum skólunum lýkur nú fyrir
áramótin og síðan verður framhald þeirra
ásamt öðmm I. stigs námskeiðum og
framhald II. og III. stigs. í tengslum við
fræðsluna hefur svo verið stofnað mál-
fundafélag þar sem öllum nemendum
skólans er heimil innganga. Það heitir
Málfundafélagið Málfús. í fræðslunni er
lögð mest áhersla á þjálfun í tjáningu og
hópvinnubrögðum. Við þá fræðslu er
notað segulband og kvikmyndavél ásamt
ýmislegum þrautum fyrir hópstarf. Svo
og ýmsar æfingar í leikrænni tjáningu.
Erindrekstur
Erindrekstur hefur verið talinn til Fé-
lagsmálaskólans eftir að hann komst á
laggirnar. Það hefur verið stefna stjómar
UMFÍ og vilji héraðssambandanna að
fulltríiar UMFÍ komi út á landsbyggð-
ina til aðstoðar samböndunum við upp-
byggingu starfsins í smáu og stóm.
SKINFAXI