Skinfaxi - 01.12.1974, Blaðsíða 17
UMFK voru valdir í landslið íslands í
júdó sl. vetur, þeir Sigurbjörn Sigurðs-
son og Hörður Óskarsson. Tveir félagar
úr júdódeildinni voru valdir til að fara
á námskeið í júdó í Þýzkalandi í sumar
á vegum Júdósambands íslands, þeir
Stefán Vestmann og Páll Þórðarson. For-
maður júdódeildar UMFK er Jón Guð-
laugsson.
Borðtennisdeild.
Borðtennis hefur verið iðkað á vegum
félagsins nú í nokkur ár, en þessi íþrótt
er aðallega iðkuð að vetri til og starf-
semi nýbyrjuð aftur eftir sumarfrí. Æf-
ingar fara fram í nýja íþróttahúsinu í
Njarðvík. Og nú fyrir nokkrum dögum
var okkur tilkynnt að Jón Sigurðsson sem
er íslandsmeistari í unglingaflokki í
borðtennis hefði verið valinn í A-lands-
lið og Hjörtur Jóhannsson í unglinga-
landsliðið.
Knattspyrnu-trimmklúbbur UMFK
Á sl. vetri setti UMFK á stofn knatt-
spymu-trimmklúbb. I fyrstu vom aðeins
nokkrir menn á joessum æfingum en þeim
fjölgaði ört, og í dag eru 50 til 60 menn
skráðir í þennan klúbb og 2 til 3 æfing-
ar erp á viku.
Ymislegt.
Víðavangshlaup UMFK fór fram
snemma sumars, keppt var í 5 fl. drengja
og í tveim flokkum stúlkna. Veitt voru
verðlaun fyrir 3 fyrstu menn en einnig
var keppt um bikar, sem Kaupfélag Suð-
urnesja gaf.
Tveir félagar úr UMFK, þeir Hörður
Jóhannsson og Jón Guðlaugsson fóm á
æskulýðsmót í Noregi á vegum UMFÍ,
styrktir af UMFK.
SKINFAXI
Nýtt ísl. drengjamet
í kringlukasti
Þráinn Hafsteinsson setti 11 íslands-
met í sveinaflokki í frjálsum íþróttum
árið 1973. í ár keppti hann í fyrsta sinn
í drengjaflokki, og strax bætti hann met
Erlends Valdimarssonar í kringlukasti og
kastaði 55,22 m. Stóru kringlunni (2 kg.)
kastaði hann 44,12 m. í surnar, en það er
HSK-met. Spjóti fullorðinna kastaði
hann 56,68 m., og er það einnig nýtt
HSK-met. Drengjakúlunni varpaði hann
14,50 m. og stóru kúlunni 12,30 m. í
hástökki stökk hann 1,85 m. Þráinn er
meðal efstu mann á afrekaskrá íslands í
kringlukasti, spjótkasti og hástökki þótt
enn sé hann aðeins 17 ára gamall. Hann
einbeitir sér nú að tugþraut.
Þráinn Hafsteinsson, Umf. Selfoss.
17