Skinfaxi - 01.12.1974, Page 35
19. SAMBANDSRÁÐSFUNDUR UMFÍ
í GRINDAVÍK
Fundurinn hófst með morgunkaffi í
Festi kl. 9,00 fyrir þá fjölmörgu er mættu
til fundarins vítt og breitt af landinu í
fyrsta snjó vetrarins á Suðvesturskag-
anum.
Alls sóttu fundinn um 50 manns. Stjóm-
armenn UMFÍ, formenn og framkv.-
stjórar héraðssambandanna, svo og gestir
sem vom þessir:
Þorsteinn Einarsson, Eiríkur Alexand-
ersson, Reynir Karlsson, Svanfríður Guð-
jónsdóttir, Valdimar Óskarsson, Eysteinn
Þorvaldsson, Jóhannes Haraldsson, Þór-
hallur Guðjónsson, Guðmundur Snorra-
son, Vilhjálmur Ketilsson.
Þessa góðu mætingu þingfulltrúa má
tvímælalaust rekja til gróskumikils starfs
ungmennafélaganna.
Framkvæmd fundarins.
Formaður Hafsteinn Þorvaldsson setti
fundinn og bauð fundarmenn og gesti
velkomna og gat þess að það væri stefna
stjómarinnar að halda fundina sem víð-
ast á landinu og hefði Grindavík því orð-
ið fyrir valinu. Taldi hann 15. landsmót
UMFÍ, húsnæðismál, fjármál, félagsmála-
skólann og útgáfustarfsemina vera þau
verkefni er hæst bæm í stjórninni.
Starfsmenn fundarins voru kjömir:
Fundarstjórar: Guðmundur Guðmunds-
SKINFAXI
son og Gunnar Sveinsson. Ritarar: Magn-
ús Ólafsson og Haukur Steindórsson.
Sú nýlunda var gerð á flutningi skýrslu
að fyrir Iá fjölrituð punktaskýrsla í mjög
stuttu máli, en Sigurður Geirdal gerði
grein fyrir henni. Bar þar hæst geysilega
aukningu á erlendum samskiptum. Síðan
má nefna starfsemi félagsmálaskólans.
Lagði Sigurður einnig fram bráðabirgða
reikningsyfirlit.
Formaður Landsmótsnefndar, Sigurð-
ur R. Guðmundsson, gerði grein fyrir
undirbúningi fyrir Landsmótið á Akra-
nesi 1975. Taldi hann húsnæðisaðstöðu
góða, vallaraðstöðu vel á veg komna og
að sundlaug þyrfti að koma upp. Sagði
hann ætlunina að finna starfsmann upp
úr áramótum. Lagði hann fram spum-
ingar í hópstarf um ýmsa þætti undir-
búnings svo sem knattleiki, sýningar-
greinar, starfsíþróttir o. fl.
Umræðuhópar skiluðu síðan áliti og
var það sameiginleg niðurstaða þeirra að
fækka eigi þeim greinum sem lítið em
iðkaðar og taka inn nýjar í stað þeirra.
Bent var á nauðsyn þess að efla þjóð-
dansana í landinu.
Þegar hér var komið sögu var neytt
kvöldverðar í boði bæjarstjómar Grinda-
víkur. Bæjarstjórinn Eiríkur Alexanders-
son, bauð fundarmenn velkomna, rakti
35