Skinfaxi - 01.04.1976, Page 21
Nú er hægt að ferðast ódýrar en áður
50% AFSLÁTTUR
Eins og flestum mun kunnugt hefur
verið unnið að því að undanförnu af
stjórnum ÍSÍ og UMFÍ að finna ein-
hverja úrlausn á því vandamáli sem
hinn mikli ferðakostnaður íþrótta-
manna og keppnisliða er bæði hvað
varðar erlend samskipti og eins vegna
ferðalaga innanlands.
Nokkur úrlausn hefur nú fengist á
öðrum þætti þessa vandamáls með
samningi við Ferðamiðstöðina hf. um
ódýrar ferðir til Norðurlandanna.
í stuttu máli felur samningurinn
það í sér að félagar , ÍSÍ og UMFÍ fá
50% afslátt á ferðum til Norðurland-
anna og er þá miðað við 70 manna
hópa og einnig gefst kostur á ódýr-
um sólarlandaferðum vor og haust.
Rétt er að vekja athygli á því að kjör
þessi gilda jafnt fyrir alla félaga okk-
ar, en ekki eingöngu fyrir keppnis-
fólk og getur því hver sem er látið
skrá sig annaðhvort sem einstakling-
ur eða hluti af minni eða stærri hóp.
Af hagkvæmnisástæðum miðum við
flestar þessar ferðir við Kaupmanna-
höfn, en alls verða farnar fimmtán
slíkar ferðir í sumar og eru brottfarar-
dagar sem hér segir:
Hér er hópur íþrótta-
fólks frá UMFÍ scm fyr-
ir nokkrum árum fór til
Hanmerkur. Myndin er
tekin í Fuglsöcentret er
frá segir á bls. 9.
SKINFAXI
21