Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1977, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.08.1977, Blaðsíða 9
snætt hádegisverð, gengið yfir Rauða torgið og litið við í gjaldeyrisverslun er haldið rakleitt út á flugvöll því nú skal haldið suður á bóginn, nánar til- tekið til Georgíu sem er lýðveldi sunn- an til í Kákasusfjöllum, en um það lýðveldi erum við harla fáfróðir nema hvað við höfum grun um að það sé fæðingarland Stalíns. Til þess að fá þennan grun staðfestan spyrjum við samferðamann okkar frá Finnlands- deildinni. Hann kveður það rétt vera en við munum hins vegar dvelja i Tbilísi höfuðborg lýðveldisins en Stal- ín hefði fæðst í borg sem væri þar skammt frá. Það er orðið dimmt að kvöldi er við lendum á flugvellinum skammt fyrir utan Tbilísi. Þegar við stígum út úr flugvélinni mætur okkur sterkur vind- ur og okkur verður ósjálfrátt hugsað heim, en munurinn er bara sá að þetta er heitur vindur, hitastigið 28 gráður á Celsíus. í flugstöðinni taka tveir Horft yfir til Lenin-leikvangsins frá hótelinu. menn á móti okkur, Vasja, formaður Æskulýðssambands Georgíu en hinn er ritari þess. Vasja kom til íslands fyrir ári ásamt túlkinum okkar í boði Æskulýðssam- bands íslands, og í Moskvu hafði okk- ur verið sagt að hann hefði orðið svo hrifinn af móttökunum þar að hann hefði endilega viljað taka á móti ís- lenskri sendinefnd. Hann segir okkur að þessi sterki vindur hafi verið sér- staklega pantaður handa okkur svo viðbrigðin yrðu ekki of mikil. í HÖFUÐBORG GEORGIU Tbilísi er um milljón manna borg, reist í hæðum og dalverpi og líkt og í Moskvu rennur fljót í gegnum hana. Okkur þykir mikið til lj ósadýrðarinn- ar koma er við stöndum í herbergjum okkar og horfum á hvernig ljósin flökta til og frá í vindinum. Hótelið sem við búum á er nýtísku- legt, mjög stórt ferðamannahótel upp SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.