Skinfaxi - 01.08.1977, Blaðsíða 25
árangur. HVÍ-menn voru mjög sigursælir
i spretthlaupunum og náðu þar ágætum
tímum. Þórarinn Magnússon UMSS vakti
athygli fyrir mikla keppnishörku en hann
sigraði í 800 og 1500 m. hlaupum og varð
annar í 400 m. í liði HSH var María
Guðnadóttir atkvæðamest, hún sigraði í
þremur greinum. í hástökki stökk hún
1,70 m., sem er HSH-met, kastaði spjóti
37,97 m. og sigraði einnig, nokkuð óvænt,
í 100 m. grindahlaupi.
Segja má að árangur UNÞ-manna hafi
komið mest á óvart. Oddný Árnadóttir
var sú þeirra sem mesta athygli vakti.
Hún sigraði i 100 m. og 200 m. hlaupum
og varð önnur í 100 m. grindahlaupi og
Oddný Árnadóttir UNÞ býr sig undir aö
stökkva í langstökkinu.
400 m. hlaupi. Hjá UMSE bar mest á þeim
Aðalsteini Bernharðssyni og Hólmfríði
Erlingsdóttur, en þau voru jafnan i ein-
María Guðnadóttir HSH mundar spjótið.
hverju af efstu sætunum i þeim greinum
sem þau kepptu í.
í heild var mótið í alla staði vel heppn-
að og lagðist þar allt á eitt til þess að
svo mætti verða, veður, mótsstjórn og
keppendur.
SKINFAXI
25