Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1977, Side 10

Skinfaxi - 01.08.1977, Side 10
TBILÍSI, höfuðborg Georgíu. á 17 hæðir. Við búum á þeirri 6. Er við leggjumst til hvíldar finnum við til spennings yfir að sjá hvernig þessi ljósaborg muni líta út við dagmál. Og við verðum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum, þegar við árla morg- uns lítum yfir þann hluta sem sjáan- legur er frá hótelinu; augum okkar mætir hrein og björt borg í fögru um- hverfi. Skammt frá hótelinu er hæð á að giska 400—500 m. há. Þar uppi er skemmtigarður, veitingahús og útsýn- isturn. Þangað eru stöðugar ferðir með vögnum sem annað hvort fylgja jörð- inni eða eru lausir við hana. í miðri hlíðinni er mikið líkneski af konu sem heldur á skál og sverði, táknræn mynd sem merkir að á móti vinum sé vel tekið og þeim færður matur og drykk- ur en gegn óvinum sé snúist til varnar. Við sannfærumst um að við séum í fyrrnefnda hópnum þegar við mæt- um til morgunverðar, og þann tíma sem við eigum eftir að dveljast þarna dettur okkur aldrei í hug að efast um það, öllu heldur væri styrkleiki vin- áttunnar í réttu hlutfalli við það magn kræsinga sem fyrir okkur voru bornar daglega, þá væri þar á ferðinni mikil vinátta. Við komumst að því þennan fyrsta morgunn okkar í höfuðborginni að okkur er svo sannarlega ekki ætlað að slæpast neitt, hver einasti dagur þess- arar fjögurra daga veru okkar þar er þaulskipulagður frá morgni til kvölds, ekki upp á neinn hérumbil-tíma held- ur upp á klukkstund og mínútur. Gest- gjafar okkar eru staðráðnir í því að sýna okkur sem mest á þeim tíma sem til stefnu er. Það viðurkennist að Kvenlíkneskið mikla. 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.