Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1977, Side 11

Skinfaxi - 01.08.1977, Side 11
þetta var nokkuð þreytandi meðan á því stóð, en eftir á að hyggja hefðum við ekki viljað missa af neinu af því sem boðið var upp á. Sú staðreynd að við þessar norður- hjaraverur vorum nú staddir á suð- lægri breiddargráðu í steikjandi sól og hita og gátum lítið sem ekkert not- fært okkur þá möguleika sem buðust til að umbreyta litafrumum húðarinn- ar, olli nokkrum áhyggjum, en við því var ekkert að gera, en til þess að fara ekki algjörlega á mis við þessi gæði heimsins var hvert tækifæri notað til að stinga nefinu i sólina og er ekki örgrannt um að sumir hafi verið all- háleitir þann tíma sem verið var utan dyra. HALDIÐ ÚT ÚR HÖFUÐBORGINNI Og nú er ferðinni heitið til að skoða gömlu höfuðborgina sem liggur í um 30 km. fjarlægð frá þeirri nýju, á stað þar sem tvö fljót mætast. Á leiðinni þangað gleymum við alveg hversu heitt er, því athygli okkar er öll bundin við aksturinn og nú er svo komið að í fyrsta sinn á ævinni er ég hræddur í bíl, hinir innfæddu bílstjórar okkar virtust ekki mikið vera að hugsa um lagakróka kennda við umferð. Vegur- inn út frá borginni er tvær akgreinar, ein í hvora átt, skipt með óbrotinni línu, hvor um sig nægjanlega breið til þess að rúma tvöfalda umferð, en á því er engin regla, yfirleitt er ekið á miðjum vegi. Þetta leiðir af sér sí- felldan framúrakstur og þar sem áætl- un okkar er nákvæmlega tímasett og mikið liggur við að hún standist erum við í hópi þeirra sem aka fram úr, þannig að oft á tíðum er bíllinn okkar á öfugri akrein á æsiferð og bílar á móti. Smám saman förum við að venj- ast þessu því allt sleppur þetta nú ein- hvern veginn. Rósemi bílstjórans hef- ur góð áhrif á okkur, honum virðist þessi akstursmáti svo eðlilegur og sjálfsagður að hræðslan rennur af okkur; merkilegt nokk, við verðum aldrei varir við umferðaróhöpp þann tíma sem við dveljumst í borginni. Á leiðinni til gömlu höfuðborgarinn- ar skoðum við gamallt klaustur sem stendur uppi á snarbrattri hæð, en í kringum það eru leifar af rammgerð- um virkisveggj um frá þeim tíma er klaustrið var afdrep íbúa héraðsins ef hættu bar að höndum, en vegna legu þess var ekki auðsótt þangað þeim er ekki vissu um þá leið er greiðfærust var. Inn í sjálft klaustrið er ekki hægt að fara nú þar sem yfir stendur gagn- ger viðgerð á því. Við látum okkur því nægja að virða fyrir okkur útsýnið. Síðan er haldið til hinnar gömlu höf- uðborgar. Þegar þangað er komið er haldið rakleitt til að skoða ævaforna kirkjubyggingu sem að innan er prýdd myndum frá 13. og 14. öld. Þær eru margar farnar að láta á sjá en hafa þó haldið sér furðuvel fram á þennan dag. Myndirnar sýna píslarsögu Krists; einnig eru þarna myndir af hinum ýmsu dýrlingum. Þegar við höfum virt þessi furðuverk fortíðarinnar fyrir okkur um stund og hlýtt á sögu bygg- ingar og borgar höldum við á ný út í sólskinið. Margt fólk er þarna sömu erinda og við, en við sjáum þó fólk á stjái sem greinilega er íbúar þessarar SKINFAXI 11

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.