Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1977, Side 12

Skinfaxi - 01.08.1977, Side 12
öldnu borgar. Það lætur ferðamanna- ysinn ekki hafa truflandi áhrif á sig en tekur lífinu með ró. Enn á ný er sest inn í bílana, sem að sjálfsögðu eru Volgu-gerðar, og ekið til baka til Tbilísi. Þar er farið í skoð- unarferð um borgina, matur snæddur og farið aftur í skoðunarferð. í ferð- um þessum komum við m.a. í byggða- safn, nokkurs konar Árbæjarsafn, þar sem varðveitt eru gömul hús, aðallega sveitabæir frá hinum ýmsu tímum sögunnar. KOMIÐ í ÆSKULÝÐSBÚÐIR Aftur er haldið út úr borginni, í þetta sinn í gagnstæða átt við það sem farið var um morguninn, og nú er ferðinni heitið til æskulýðsbúða skammt fyrir utan Tbilísi. Þeðar við stígum út úr bilnum fyrir utan hliðið rekur okkur í rogastans. Meðfram stígnum sem liggur heim að búðunum standa á annað hundrað börn, prúðbúin og snyrtileg með rauða hálsklúta og húfur, og fagna okkur með lúðrablæstri og kveðjuhrópum. Þar sem við áttum alls ekki von á slík- um móttökum verða okkar fyrstu við- brögð að líta um öxl og skyggnast eftir því hvort þar væru tignir gestir á ferð sem við af einhverjum ástæöum hefð- um orðið á undan. Svo er ekki og við verðum að kyngja því að þessar mót- tökur séu okkur ætlaðar. Við göngum því stíginn á enda. Þar sem honum lýkur á allstóru svæði er numið staðar. Lúðrablásturinn þagnar en við tekur svellandi harmonikkuleikur, tvö börn, stúlka og drengur, stíga fyrir okkur Georgiskan dans. Þegar honum lýkur ganga fram tvær stúlkur og bjóða gestunum upp í dans. Nokkurt fát og fum kemur á þá en stúlkurnar eru ákveðnar og þeir verða að ganga fram og freista þess að bera sig til við dans- inn eitthvað í líkingu við það sem mótdansarar þeirra gera. Dansinum lýkur stórslysalaust en ekki er laust við að sumir andi léttar. Hér fær Þorsteinn að spreyta sig t dansinum. 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.