Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1977, Qupperneq 14

Skinfaxi - 01.08.1977, Qupperneq 14
langt mál yrði hér upp að telja. Ljós- myndari fylgir okkur á þessa fundi og er okkur tjáð að myndirnar af okkur þremenningunum skuli varðveittar á safni Komsómól-deildarinnar sem ver- ið er að stofnsetja um þessar mundir. Við fáum svo sýnishorn af þessum myndum áður en við höldum af stað til Moskvu. SAMYRKJUBÚ HEIMSÓTT Enn erum við komnir upp í Volg- urnar og nú er ferðinni heitið út í sveit til að skoða samyrkjubú. Perðin þang- að tekur tæpa tvo tíma, en sem betur fer er vegurinn malbikaður svo hægt er að hafa opna bílglugga án þess að eiga það á hættu að allt fyllist af ryki. Þegar til búsins kemur erum við Beðið eftir bílunum. Frá v.: Þorsteinn, Gylfi og túlkurinn Arvo. drifnir á fund með yfirmanni búsins. Á þessu samyrkjubúi, sem stofnað var 1929, hefur einkum verið lögð áhersla á trjárækt auk ávaxtaræktunar og starfa þarna 350 manns, 50 þeirra með háskólamenntun. Unnið er fimm daga vikunnar, 7 tíma á dag, en um upp- skerutímann er þó unnið lengur eða Við veisluborðið. 8—9 tíma á dag. Á þennan hátt er unnið 11 mánuði en einn mánuður er hvíldarmánuður. Að fundinum lokn- um snæddum við kvöldverð úti undir berum himni á fögrum stað í skógar- lundi þar sem lækjarspræna seytlar, og vatnið í henni er eins gott og það best gerist á íslandi. Borðið svignar undan kræsingum og þarna hefst hið allra lengsta borðhald sem við höfum setið, það stendur samfleytt í 6 stund- ir og það er orðið rökkvað þegar stað- ið er upp frá borðum. Þannig líða dagarnir einn af öðrum við skoðunarferðir, viðræður og mat- arveislur. Við skoðum verksmiðju sem framleiðir rafmagnslestir og lyftara, heimsækjum listakonu og verðum hreint furðu lostnir yfir afköstum hennar sem er húsmóðir og tveggja barna móðir. Þarna eru m.a. högg- myndir og við fáum að handleika hamarinn sem hún notar við iðju sína og hann er engin léttavara. AFTUR TIL MOSKVU Og þá erum við komnir í loftið og ferðinni heitið aftur til Moskvu. Gest- gjafarnir gerðu ekki endasleppt við okkur og bjuggu okkur út með nesti 14 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.