Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1977, Qupperneq 23

Skinfaxi - 01.08.1977, Qupperneq 23
gengur snurðulaust fyrir sig. Héraðs- læknirinn í Stykkishólmi, Pálmi Frí- mannsson, er meðal keppenda i 1500 og £000 m. hlaupi og er greinilegt að lengra hlaupið á betur við hann (enda hleypur hann 10 km. á hverjum morgni), þar sigr- ar hann örugglega og er alls ekki langt frá héraðsmetinu. „Ég neita því ekki að það væri gaman að eiga héraðsmetið,“ segir hann að hlaupinu loknu, og bætir svo við: „hver veit nema það komi, svona áður en maður verður gamall." Það er komið að lokum mótsins, aðeins eftir að tilkynna úrslit stigakeppninnar, og brátt upplýsist að Snæfell, Stykkis- hólmi, hefur náð flestum stigum út úr greinum þessa móts og fær að launum veglegan grip til varðveislu fram að næsta héraðsmóti. Keppendur, starfsfólk og áhorfendur halda heimleiðis eftir langan og lýjandi dag en þó í alla staði mjög ánægjulegan. Fararskjóta Skinfaxa er snúið suður á bóginn á ný. í Borgarnesi er komið við hjá Fleming Jessen sem er kennari þar og jafnframt potturinn og pannan í frjálsíþróttastarfi Umf. Skallagrims, hann lætur vel yfir síðari degi Héraðs- Sigursælar stöllur úr Stykkishólmi, frá vinstri: Kristjana Hrafnkelsdóttir, Sigurlaug Friðþjófs- dóttir, Maria Guðnadóttir. Hart barist í úrslitum 100 m. hlaupsins, frá hægri: Jónas Kristó- fersson, Bjartur Bjarna- son, Hilmar Gunnarsson og Þór Albertsson. móts UMSB og er ánægður með árangra og segir að þeir árangrar sem nægðu til sigurs i fyrra hefðu ekki nægt nema í 3.—4. sæti nú, svo framfarirnar eru ör- ar hjá þeim Borgfirðingum. Eftir að hafa tekið niður úrslit síðari dagsins og drukkið kaffi með, er enn haldið af stað út í myrkrið, sem minnir óþægilega á, að senn fer sumri að halla. SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.