Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1978, Page 3

Skinfaxi - 01.12.1978, Page 3
SKINFAXI Tímarit Ungmennafélags Islands — LXIX árgangur 6. hefti 1978. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári. Úr setningarávarpi 21. sambandsráðsfundar r Hafsteinn Þorvaldsson form. UMFI. Þegar ég lít yfir liðið starfsár verður mér á að hugsa, að oft hefur meira vatn til sjávar runnið milli stórviðburða á vettvangi heildarsamtakanna en nú, og þann árangur ber vissulega mörgum að þakka. Landsmót hefur verið haldið með glæsibrag, og Húskaupamál hreyfmgarinnar farsœliega til lykta leitt, sem hendi vœri veifað, og vonandi gefst okkur tækifæri tilþess að ræða þá framkvæmd, sem í huga mínum líkist fremur æfintýri en biá- köldum staðreyndum. Mér er efst í huga þakkir fyrir hönd hreyfmgarinnar, ogfyrir mig persónulega að hafa fengið að vera með. 16. Landsmót UMFÍ var haldið á Selfossi 21. til 23.júlíísumarí umsjá H.S.K. og varsem jafnan áður glæsilegra en nokkur hin fyrri mótsem haldin hafa verið. Skarphéðinsmönnum færi ég bestu þakkir fyrir frábæra framkvæmd og fyrir- greiðslu alla í sambandi við mótið, um leið og ég óska UMSE til hamingju með þá óhagganlegu ákvörðun þeirra að halda 17. Landsmót UMFÍ1981. Erlend samskipti hafa blómstrað, sem undanfarin nokkur ár, og ber þar hæst velheppnaða æfinga- og keppnisferð frjálsíþróttafólks UMFÍ til Danmerkur í sumar að loknu landsmóti. Útgáfustarfsemi á vegum hreyfingarinnar vex stöðugt, og ber vissuiega vott um aukið starf, og kunnáttufélaganna á þessu sviði. Gunnari Kristjánssyni ritstjóra Skinfaxa skulu hér þakkirfluttarfyrir nýjung- ar og endurbætur á allri útgáfu málgagnsins, svo og önnur störf í okkar þágu. Félagsmálaskóli UMFÍ hefur nú hlotið viðurkenningu ogfastan sess á vegum samtakanna. Félagsmálakennurum okkar skulu hér sérstakar þakkirfluttar, svo SKINFAXI 3

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.