Skinfaxi - 01.12.1978, Blaðsíða 19
Núverandi stjórn NSU f.v.
Henry Gustavsson Finnlandi,
Torill Aaen Noregi, Tore
0sterás Noregi formaður,
Karen Bjerre Madsen
Danmörku, Karl Kring Suður-
Slésvík og Jóhannes Sig-
mundsson íslandi. Á myndina
vantar Torsten Karlsson Sví-
þjóð.
Æskulýðsvikur NSU
Eins og fyrr var drepið á efnir NSU til
svonefndrar æskulýðsviku á hverju sumri
til skiptis í aðildarlöndunum, nú síðast í Sví-
þjóð, nánar tiltekið í Osby á Skáni, dagana
23.—29. júlí. Bar það að nokkru upp á
sömu daga og landsmót UMFÍ á Selfossi,
en þó sóttu 9 íslendingar þessa viku. Þarna
er starfað að ýmsum áhugamálum og kynn-
ingarstarfsemi og er óhætt að hvetja ung-
mennafélaga um land allt til að gefa þessu
meiri gaum í framtíðinni, því að þátttaka
hefur verið frekar dræm af íslands hálfu,
en reiknað er með 20 þátttakendum frá
hverju landi og er öllum kostnaði mjög í
hóf stillt og ferðir greiddar niður. Þess má
geta, að slik æskulýðsvika hefur einu sinni
verið haldin á íslandi, á Flúðum sumarið
1976 og þótti mjög vel til takast. Næsta
sumar verður æskulýðsvika í Finnlandi. Þá
efnir NSU árlega til ráðstefnu ungs bænda-
fólks og á næsta ráðstefna að vera á íslandi,
en óvíst er, þegar þetta er ritað, hvort af því
getur orðið, þar sem styrkveiting til ráð-
stefnuhaldsins brást.
Ár norrænna samskipta
Á stjórnarfundi NSU í Helsinki í mars
1977 var rædd sú hugmynd að efna til stór-
aukinna samskipta og samstarfs milli aðild-
arfélaganna á árinu 1979 undir heitinu
Nordisk Kontaktár. Sérstök nefnd var
skipuð í málið og hefur talsvert verið rætt
og ritað um málið og hefur hugmyndin
hlotið góðar undirtektir. Á ársþinginu nú í
haust var málið tekið sérstaklega fyrir í um-
ræðuhópi, en ekki er fullmótað enn hvernig
að þessu verður staðið, en geta má þess í
lokin, að rætt var sérstaklega um aukna
kynningarstarfsemi í blöðum og tímaritum
og gæti þetta greinarkorn skoðast sem liður
í því starfi.
SKINFAXI
19