Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1978, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.12.1978, Blaðsíða 16
Þjónustu- miðstöðin formlega í notkun. Þann 4. nóv. sl. var húseign UMFÍ að Mjölnisholti 14 í Reykjavík tekin formlega í notkun. Til athafnar þessarar var boðið fulltrúum og gestum á Sambandsráðsfundi UMFÍ, er haldinn var þennan sama dag í Kópavogi, en auk þess nokkrum fleiri gest- um. Boðið var upp á kaffi og meðlæti fram- reitt af eiginkonum formanns og fram- kvæmdastjóra, þeim Ragnhildi Ingvars- dóttur og Ólafíu Ragnarsdóttur. Flutt voru ávörp og heillaóskir og gjafir gefnar UMFÍ í tilefni þessara tímamóta. Má þar nefna gjöf frá húskaupanefndinni sem er gestabók með fagurlega úrskornum trékápum, málverk frá byggingameistara hússins Kristjáni Finnssyni og frú, málað af honum sjálfum. Þá færðu samböndin UMSK og HSK UMFÍ að gjöf sitt mál- verkið hvort og höfðu menn á orði að ef svo héldi fram fengi formaður UMFÍ „mál- verk” að lokum, en hann veitti gjöfunum viðtöku. Forseti ÍSÍ Gísli Halldórsson flutti kveðj- ur og árnaðaróskir fyrir hönd ÍSÍ og færði UMFÍ að gjöf skjöld íþróttasambandsins. 16 Hfckaupanefhd UMFl f.v. Gunnar Sveinsson, Pálmi Gfslason og Valdimar Öskarsson. Svipmyndir frá húsvigslunni, neAst til hcgri er ingaaieistari hússins Kristján Finnsson ásamt sinnL

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.