Skinfaxi - 01.12.1978, Qupperneq 5
Sambandsráðsfundur
UMFÍ
haldinn íKópavogi
14. nóv. 1978
Fjölmennt á fundi
Sambandsráðsfundur UMFÍ var haldinn
í Kópavogi 4. nóv. sl. Sambandsráðsfundur
er haldinn annað hvort ár eða það ár sem
þing UMFÍ eru ekki haldin. Sambandsráð
skipa formenn allra sambandsaðila UMFÍ
auk stjórnar UMFÍ. Þátttaka á fundinn var
mjög góð, liggur við að segja megi að hún
hafi verið óvanalega góð.
Segja má að markmið fundarins hafi
verið að líta yfir þau störf sem unnist hafa
frá því að þing kom saman á Þingvöllum
1977, ennfremur og ekki siður, að huga að
framtíðarverkefnum sem í sívirkri hreyf-
ingu eru óþrjótandi.
Fundarstjóri var kjörinn Bergur Torfa-
son stjórnarmaður UMFÍ, fundarritarar
Ófeigur Gestsson UMSB og Pétur Eiðsson
UÍA.
Það liðna
Framkvæmdastjóri, Sigurður Geirdal,
rakti helstu liði úr svokallaðri punkta-
skýrslu sem lögð var fyrir fundinn. í
skýrslu þessari var drepið í stuttu máli á þá
þætti sem komið hafa til kasta UMFÍ frá
síðasta þingi, kennir þar margra grasa svo
sem vænta má og skal nokkurra þeirra
getið hér.
Stjórn UMFÍ hefur haldið 4 fundi á
tímabilinu og ætti engum að koma á óvart
að helstu mál þessara funda hafa verið hús-
kaupamálið og 16. landsmót UMFÍ auk
annarra málefna ss. útbreiðslumál Skin-
faxa, Þrastaskógur og erlend samskipti.
Hugmyndir og álit vantar
í 5. lið punktaskýrslunnar er Skinfaxi á
dagskrá og segir þar m.a.: „Nokkrar
umræður hafa átt sér stað um blaðið sl. ár
og virðist áhugi fyrir því fara vaxandi.
Tekin hefur verið upp offsetprentun á
blaðinu og var annað hefti 1978 fyrsta blað
Skinfaxa sem þannig er prentað.” Enn-
fremur segir: „Blaðið hefur nokkuð breytt
um svip undir stjórn nýs ritstjóra en það er
áríðandi að menn hafi samband við ritstjór-
ann og segi álit sitt á blaðinu, komi með
hugmyndir um efni og hjálpi til við að gera
SKINFAXI
S