Skinfaxi - 01.12.1978, Page 7
Uppgjör 16. landsmótsins á Sel-
fossi
Guðmundur Jónsson framkvæmdastjóri
16. landsmóts UMFÍ gerði grein fyrir út-
komu þess fjárhagslega „að því leyti sem
ennþá væri unnt” en þar hafa öll kurl ekki
enn til grafar komið, allt útlit er fyrir því að
landsmótið sleppi á sléttu ef ríkisvaldið fáist
til að gefa eftir helming löggæslukostnaðar
1,4 milljón króna sem góð orð hafa fengist
fyrir. Guðmundi þótti ástæða fyrir næstu
landsmótsnefnd að vera vara um sig í
samningum við löggæsluyfirvöld.
Þess má geta að seldur aðgangseyrir nam
um 12 milljónum króna á þessu 16. lands-
móti UMFÍ.
Húskaupamál
Pálmi Gíslason formaður húskaupa-
nefndar, rakti gang mála varðandi hús-
kaupin svo og stöðu húskaupasjóðs og þátt-
töku aðila við söfnunarherferðina, þarf
ekki að fjölyrða um þau mál hér þar sem
listi yfir stöðuna birtist í síðasta tbl. en þess
má geta að enn hefur ekki þurft að taka
krónu að láni né borga krónu í vexti, en
slíkt mætti teljast til meiriháttar afreka á
þeim tímum sem nú eru uppi.
Framtíðin
Þegar hér var komið sögu á Sambands-
ráðsfundi var tekið til við að huga að fram-
tíðarverkefnum og fundarmönnum skipt
upp í umræðuhópa eftir eigin áhugasviði
og teknar upp hringborðsumræður við
ýmsar aðstæður um þau málefni sem efst
eru á baugi s.s. Skinfaxi, 17. landsmót
UMFÍ og Félagsmálaskólinn.
í umræðum þessum komu menn víða við
en höfðu til grundvallar það sem lagt hafði
verið fram í þeim málefnum áður en hring-
borðsumræður hófust.
Með tilliti til þeirra álita sem hóparnir
skiluðu í lok fundarins má ætla að enn um
sinn verði ekkert lát á baráttu hreyfingar-
innar í átt aukins framgangs og vaxandi
starfs.
G.K.
Frá sambandsráðsfundi. F.v. Gisli Guömundsson
form. UDN, Guðmundur Þörarinsson form. UNÞ,
Ásmundur Gtslason form. USÚ, Guðmundur Gunn-
arsson framkvæmdastjórí UMSS, Haukur Hafsteins-
son framkvæmdastjóri UMFK, Hafsteinn Guðmunds-
son form. UMFK, Páll Dagbjartsson form. UMSS og
nefið á Jóni Guðjónssyni form. HVt.
8KINFAXI
7