Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1978, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.12.1978, Blaðsíða 18
Jóhannes Sigmundsson. HVAÐ ER N.S.U.? Hin síðari ár hefur UMFÍ lagt vaxandi áherslu á erlend samskipti, eink- um og nær eingöngu við skyld félagasamtök á Norðurlöndum. Árið 1971 gerðist UMFÍ virkur aðili að NSU, þ.e. Nordisk Samorganisation for Ung- domsarbejde. NSU er samband norrænna ungmennasamtaka, sem starfa á svipuðum grundvelli og UMFÍ. Nú eru starfandi innan NSU13 félagasam- tök með rösklega eina milljón félaga innan sinna vébanda. Með íþessu nor- ræna samstarfi eru ungmennasamtök Dana í Suður-Slésvík, Sydslesvigs Danske Ungdomsforeninger, en Danir í Suður-Slésvík, sem eru þýzkir ríkis- borgarar, gera margt til að varðveita þjóðerni sitt. NSU var stofnað árið 1947. Tilgangur- inn var og er að auka samstarf og skilning meðal ungs fólks á Norðurlöndum og meðal félagasamtaka og félaga innan NSU. Raunar var þegar árið 1935 efnt til nor- rænnar æskulýðsviku á svipuðum grund- velli og NSU gerir enn í dag. Helsti hvata- maður að því starfi var danski lýðháskóla- frömuðurinn Jens Marinus Jensen, sem ís- lensku ungmennafélögunum er að góðu kunnur. Ársþing NSU eru haldin annað hvert ár. Þar er kosin stjórn og stefna samtakanna mörkuð og gerðar áætlanir um starfið framundan. Hvert land ræður þar yfir 4 at- kvæðum, þ.e. Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland og ísland, 20 atkvæði alls. í stjórninni eiga sæti 7 manns. Fyrst eru kosnir formaður og varaformaður og síðan einn fulltrúi frá hverju landi. Núverandi formaður er Tore 0sterás frá Noregi, vara- formaður Karen Bjerre Madsen, Dan- mörku og aðrir i stjórn eru Henry Gustavs- son, Finnlandi, Torill Aaen, Noregi, Tor- sten Karlsson, Svíþjóð, Karl Kring, S-Slés- vík og Jóhannes Sigmundsson, íslandi. Auk þess starfa ýmsar nefndir á vegum NSU. Til að spara ferðakostnað sitja sumir stjórnarmanna í nefndum, a.m.k. frá ís- landi og Finnlandi og eru þá nefndarfundir haldnir í sambandi við stjórnarfundi. Síð- asta ársþing NSU var haldið í S-Slésvík í sept. sl. en næsta ársþing verður á íslandi 1980. it SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.