Skinfaxi - 01.12.1978, Page 21
ÞRASTASKOGUR
(A thugasemd við Þrastaskógargrein)
í Skinfaxa 3. tbl. 1978 er grein um Þrastaskóg, sem ég œtla að gera at-
hugasemdir við og vona ég að ritstjóri Skinfaxa sjái sér fært að birta þessar
athugasemdir fljótlega.
í umræddri grein er kafli, sem ber fyrir-
sögnina „Sumarhús héraðssambandanna í
Þrastaskógi.” Þar kemur fram sú hugmynd
að héraðssamböndin og ungmennafélög í
U.M.F.Í. komi sér upp sumarhúsum í
Þrastaskógi. Ég tel, að hér sé hvatt til
rangrar stefnu um framtíð Þrastaskógar.
Ég skal nú færa rök fyrir þvi.
Gróðurinn í Þrastaskógi er mjög við-
kvæmur fyrir öllum átroðningi manna og
dýra og þolir ekki mikinn átroðning. Ef
farið verður inn á þá braut, að setja upp
fjölda húsa um allan skóg, þá hlýtur það að
raska öllum þeim fallega gróðri, sem vaxið
hefur upp í skjóli friðunar um áratugaskeið.
Gróðurinn í Þrastaskógi er að mörgu leyti
sérstakur, þar eru nokkrar sjaldgæfar jurtir,
sem finnast óvíða á íslandi. Ég vil t.d.
nefna hjartatvíblöðku, sem vex sennilega
ekki nema á tveim, þrem stöðum á íslandi.
Þegar Akureyringar komu sér upp gras-
garði á Akureyri kom maður frá þeim í
Þrastaskóg til að ná í hjartatvíblöðku til að
setja i garðinn. Ég vil því hvetja alla ung-
mennafélaga, að standa vörð um Þrasta-
skóg og koma í veg fyrir allar framkvæmd-
ir, sem munu raska gróðurlífi svæðisins.
Ég skil vel, að héraðssamböndin í
U.M.F.Í. vilji nýta þetta fagra svæði félög-
um sínum til ánægju, en alls ekki á þennan
hátt eins og kemur fram í umræddri Þrasta-
skógargrein.
Ég tel að ungmennafélagar ættu frekar
að stefna að því, að koma upp sameiginlegri
aðstöðu allra héraðssambandanna við hinn
fagra íþróttavöll í Þrastaskógi og vinna það
á skipulegan hátt, en ekki að dreifa smáhýs-
um um allan Þrastaskóg, eins og nú er byrj-
að á með sumarhúsi U.M.S.K.
Þeir sem ekki eru á sama máli og ég ættu
að athuga staðsetningu sumarhúss
U.M.S.K. í Þrastaskógi og athuga hvernig
þar hefur verið staðið að verki. í Þrasta-
skógargreininni stendur að U.M.S.K. hafi
verið á hrakhólum með endanlega staðsetn-
ingu hússins og var síðan flutt með viðeig-
andi tilfæringum í lok apríl og sett niður
skammt fyrir innan hliðið í Þrastaskógi!
Síðar segir í greininni: „Ef til vill verður
þessi flutningur fyrsta skrefið í þá átt að öll
aðildasamböndin og félög innan U.M.F.Í.
eignist sitt sumarhús í Þrastaskógi.”
Nú skulum við athuga staðsetningu
þessa húss. Húsið er sett niður í grenilund,
sem U.M.F. Eyrarbakka setti niður plöntur
í árið 1952, þá voru þær 15 til 20 sentimetr-
ar á hæð, en nú hafa þær náð að vaxa upp í
2 til 4 metra. Til að koma húsinu á þennan
SKINFAXI
21