Skinfaxi - 01.06.1979, Blaðsíða 13
íþróttanefnd að störfum.
í frjálsum íþróttum innanhúss og einnig
var haldið mót í fimmtarþraut. Nokkur
sýslumet voru sett á árinu. Á Landsmót
UMFÍ fóru 30 keppendur frá USAH.
Skáksveit sambandsins hafnaði þar í
þriðjasæti með 11,5 vinning.
Lið frá USAH tók ekki þátt í þriðju
deild íslandsmótsins í knattspyrnu, eins
og undanfarið, en áhersla var lögð á
keppni milli félaganna á sambandssvæð-
inu. Sund er vaxandi grein innan sam-
bandsins, en það háir sundfólkinu hve fá
taekifæri það á til að keppa út á við.
Af samkomum, sem sambandið stóð
fyrir á árinu bar Húnavakan hæst eins og
lafnan áður, en einnig var gengist fyrir
spilakvöldum um miðjan vetur og hátíða-
höld voru 17. júní.
Ritið Húnavaka kom út í 18. sinn. Nú
er verið að kanna möguleika á að láta
endurprenta tvo fyrstu árganga ritsins,
SKINFAXI
sem komu út fjölritaðir. Líkur eru á að af(
endurútgáfu verði á þessu ári.
Á þinginu í Húnaveri voru fjölmargar
tillögur samþykktar, sem marka munu
starf sambandsins á þessu ári. M.a. voru
nokkrar tillögur samþykktar, sem gengu í
þá átt að auka enn starfið fyrir yngstu fé-
lagana, t.d. með því að koma á keppni
yngri flokkanna í knattspyrnu við
nágrannahéruð.
Þá var samþykkt tillaga um að skora á
stjómvöld að hætta skattheimtu af sjálf-
boðastarfi ungmenna — og íþróttafélaga
m.a. hætta að innheimta söluskatt af
þeim fjáröflunarleiðum sem þessi félög
standa fyrir. Samþykkt var að skora á
sveitarfélögin að halda enn áfram að bæta
aðstöðu til iþr^ttaiðkunar í héraðinu og
skorað var á sýslunefnd að láta gera veg-
legt skilti með héraðsmerki við sýslumörk
A-Hún. á Vatnsskarði og við Gljúfurá.
13