Skinfaxi - 01.12.1979, Page 6
íþróttagreinar sem fela í sér áreynslu af
þessu tagi, t.d. knattleikir, eru hollar og
gagnlegar, en greinar eins og spretthlaup,
stökk og köst eru meira i ætt við kraft-
þjálfun. íþróttir eins og golf gefur mikla
hreyfingu en tæplega nóga áreynslu sam-
fellt til að kallast þolþjálfun.
Jákvæð áhrif þolþjálfunar
Hjarta og æðakerfi. Mikið er rætt
um að kyrrsetur séu hættulegar hjartanu
og auki líkur á hjartasjúkdómum. Þol-
þjálfun ætti því að hafa góð áhrif til varn-
ar þessum sjúkdómum og margt bendir
líka til þess, þótt tölfræðilega öruggar
staðreyndir liggi ekki fyrir. En það eru
margir þættir, sem auka áhættu á krans-
æðasjúkdómum, og aukin hreyfing og
þolþjálfun hefur áhrif á marga þeirra.
Sykursýki veldur aukinni æðakölkun
og kemur oft hjá offeitu fullorðnu fólki
sem afleiðing lítillar brennslu og óhófs í
mataræði. Nýlegar rannsóknir sýna, að
þeir sem borða lítið og brenna litlu eru lík-
legri til að fá sykursýki og kransæðastíflu
en þeir sem brenna miklu og borða mikið,
jafnvel þó þeir séu feitari en hinir. Það er
augljóslega vegna hollustuáhrifa hreyf-
ingar og áreynslu, sem eykur brennsluna.
Offita skaðar annars heilsuna á ýmsan
hátt, þótt hún sé sjaldan mjög hættuleg.
Fólk hefur líka fremur áhyggjur af því að
hún skaði útlit þeirra en heilsu. Aukin
hreyfing er öflugt vopn í baráttunni við
Þessi unjja dama nolar ekki takkaskó »)> á þvi ekki á ha'llu aó snúa á sér hnén.
6
SKIIUFAXI