Skinfaxi - 01.12.1979, Side 11
stöðum kemur í ljós að Garðbæingar
verða fyrir 1165 króna kostnaði á hvern
baðgest á árinu 1978 og eru þar hæstir en
Neskaupstaðabúar fylgja fast á eftir með
1110 króna kostnaði. Minnstur er kostn-
aður á hvern baðgest í sundlaug Vestur-
bæjar 192 kr., en sé litið út fyrir Reykja-
víkursvæðið, þar sem fjöldinn er mestur,
er sundhöll Siglufjarðar með minnstan
kostnað 257 kr. þar á eftir koma Akureyri
með 263 kr. og Selfoss 296 kr. kostnað á
hvern baðgest á árinu 1978. Umfang
þjónustu spilar hér sterklega inn í, svo og
jarðhitanýting. En hverjir töpuðu mest á
árinu 1978. Þar eru Garðbæingar aftur
fremstir í flokki með 1148 kr. tap á hvern
baðgest en Neskaupstaðarbúar bera 954
kr. tap og Seyðfirðingar 908 kr. Minnsta
tapið verður aftur á móti hjá sundstöðum
í Reykjavík í Laugardal 82 kr., og Vestur-
bæjarlaug 53 kr. en á landsbyggðinni
sleppa Húsvikingar með minnsta tap 124
kr. á hvern baðgest en Siglfirðingar koma
næst með 126 kr. tap, og þar næst Selfyss-
ingar með 166 kr. tap á hvern baðgest.
Margt fleira væri hægt að tína til úr
þessum fróðlegu töflum en þetta verður
látið nægja að þessu sinni.
£& Sumarbúðir
S HSK
Dagana 19. júní til 3. júli s.l. stóð Hér-
aðssambandið Skarphéðinn fyrir sumar-
búðum í Barnaskólanum á Laugarvatni.
Haldin voru tvö námskeið, sem stóðu í
eina viku hvort.
90 börn á aldrinum 7—14 ára sóttu
námskeiðin svo til jafnt af báðum kynj-
um.
Um aðstöðu fyrir svona námskeið á
Laugarvatni þarf ekki að fjölyrða, hún er
alveg frábær, þar er allt sem til þarf, auk
þess að umhverfi allt er mjög þægilegt og
fagurt.
Ekki er að efa að sumarbúðarekstur
fyrir börn á þessum aldri er mjög nauð-
synlegur, má í því sambandi nefna að
þarna fá börn tilsögn í íþróttum, læra að
umgangast hvort annað og taka tillit til
fleirri en sjálfra síns. Auk þess voru börn-
in látin hjálpa til í eldhúsinu, jafnt strákar
og stelpur og taldi ekkert barnanna það
eftir sér.
Eftir þá reynslu sem varð af sumarbúð-
unum s.l. sumar, má fullvíst telja að
áframhald verði á slíkum rekstri.
Sumarbúðastjórar voru Kjartan Lárus-
son og Hreinn Þorkelsson, matráðskona
var Auður Waage. Eru þeim, svo og
öllum sem veittu liðsinni sitt við sumar-
búðir s.l. sumar, færðar bestu þakkir.
Hópur á sumarbúóum H8K.
SKINFAXI
11