Skinfaxi - 01.12.1979, Síða 12
HAFSTEINS- HUgleÍðÍflg Uttl
SON BIKARKEPPNI FRÍ
1., 2. og 3. deild
Oft er litið á Bikarkeppni FRÍ sem
nokkurs konar prófstein á hvernig unnið
er að frjálsíþróttamálum í þeim sambönd-
um sem þátt taka í keppninni. Nú þegar
keppnistímabilinu er lokið og vetraræf-
ingar taka við er ekki úr vegi að líta aðeins
á hvernig frammistaða ungmennafélag-
anna var í þessari prófraun ársins, Bikar-
keppni FRÍ 1979.
1. deild
Fulltrúar ungmennafélaganna í 1. deild
voru frá UMSK og HSÞ. UMSK menn
hafa ætíð staðið vel fyrir sínu í 1. deild.
Sigruðu þeir t.d. árið 1971, urðu síðan í
öðru sæti nokkrum sinnum. En nú er
farið að halla undan fæti hjá UMSK, því
lið þeirra hafnaði nú í fjórða sæti í 1.
deild. Þróunin er sem sagt ekki í rétta átt
og má mikið vera ef UMSK liðið þarf ekki
að berjast af hörku fyrir sæti sínu í 1.
deild næsta sumar. En þó svo liðið sem
heild hafi ekki þróast í rétta átt, þá eru
innan vébanda þess efnilegt frjálsíþrótta-
fólk sem er á uppleið. í því sambandi
nægir að nefna Jóhann Sveinsson, Lúðvík
Björgvinsson, Thelmu Björnsdóttur,
Hrönn Guðmundsdóttur og Helgu A.
Árnadóttur.
HSÞ, Suður-Þingeyingar kepptu einnig
í 1. deild að þessu sinni. Samdóma álit
margra sem til Þingeyinganna sáu í
keppninni var að sjaldan hefðu þeir mælt
með jafn lélegu og daufu liði. Þingeyingar
hafa greinilega glatað þeim skemmtilega
12
krafti og baráttuanda sem hefur einkennt
þá svo lengi. Vitað var að róðurinn yrði
erfíður að þessu sinni en vonir Þingeyinga
urðu mjög litlar, þegar ljóst var að þeir
gætu ekki teflt fram sínu sterkasta liði. En
það afsakar samt ekki það sinnuleysi for-
ystumanna HSÞ, að senda liðið til keppni
án liðsstjóra og þjálfara. Slíkt telst kæru-
leysi og óvirðing við keppendur sam-
bandsins sem þó lögðu sig alla fram um
að halda merki sambandsins á Iofti.
Það varð sem sagt hlutskipti Suður-
Þingeyinga að falla niður í 2. deild að
þessu sinni. Ljóst er að forysta HSÞ þarf
að endurskoða stefnu sína hvað varðar
frjálsíþróttirnar. Ég vil minna Þingeyinga
á þrjú atriði sem vonandi vekja þá til um-
hugsunar og aðgerða:
1. HSÞ féll úr 1. deild í 2. deild 1979.
2. HSÞ sendi engan þátttakanda til keppni á
Meistaramóti Islands 14 ára og yngri sem
fram fór art Eiðum í sum ar.
3. HSÞ var aðeins með! 11 þátttakendur á
Meistaramóti íslands 15—18 ára, sem þó
fór fram á Húsavík.
Gott væri fyrir Þingeyinga að líta
einnig á hvernig þeirra unglingar standa
miðað við önnur sambönd, sem þátt tóku
í keppninni.
Lokastaöa í 1. deildinni varð þessi:
nr. 1 ÍR 145 stig
— 2. Á 128 stig
— 3. KR 109stig
— 4. UMSK 107 stig
— 5. FH 88stig
— 6. HSÞ 65stig
SKINFAXI