Skinfaxi - 01.12.1979, Blaðsíða 19
Félagsmálaskóli UMFÍ var stofnaður 1.
febrúar 1970 og hefur hann frá upphafi
sinnt fjölþættri félagsmálafræðslu með
stuttum námskeiðum um land allt. Nám-
skeiðin hafa verið öllum opin, og sótt af
fólki af báðum kynjum og á öllum aldri.
Á sl. skólaári voru 20 félagsmálanám-
skeið haldin og sóttu þau samtals 264
þátttakendur. Frá stofnun skólans hafa
179 námskeið verið haldin með 2980 þátt-
takendum.
Þann 3. nóvember 1978 var sett á fót
sérstök skólanefnd til að annast stjórn
skólans og var Guðmundur Guðmunds-
son Reykjavík formaður hennar. Á því
liðlega ári sem síðan er liðið hefur ýmis-
legt verið gert af hálfu nefndarinnar.
Gefin hefur verið út kynningarbæklingur
þar sem greint er frá skólanum, tilgangi
hans og starfsþáttum og námskeiðsfram-
boði, þá hefur nefndin látið hanna ný
þátttökuskírteini, í undirbúningi er útgáfa
á nýju kennsluhefti um ungmennafélags-
hreyfinguna. Samin hefur verið ný reglu-
gerð fyrir skólann og var hún samþykkt á
síðasta þingi UMFÍ. Þá hefur nefndin
tekið saman skrá yfir alla þá sem hlotið
hafa félagsmálakennararéttindi í þeim til-
gangi að hafa ætíð samband við nægilega
stóran hóp kennara sem reiðubúinn sé að
taka að sér félagsmálakennslu á vegum
skólans.
Veturinn er sá tími sem notaður er til
námskeiðahalda, það sem af er þessum
vetri hafa 6 félög haldið námskeið og
fyrirhuguð eru námskeið hjá þó nokkrum
félögum á næstunni. Þeim ungmennafé-
lögum, sem hyggja á námskeiðahald er
bent á að hafa samband við skrifstofu
UMFÍ.
Skólanefnd félagsmálaskólans skipa:
Guðmundur Guðmundsson,
Diðrik Harladsson, og
Finnur Ingólfsson.
Guflmundur GuAmundsson skólasljóri
félagsmálaskóla UMKÍ.
SKINFAXI
19