Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 8
Lottó, Lottó, Lottó, Lottó...
samverkandi þættir. Ég get nefnt fjóra
sem mér sýnist þeir mikilvægustu:
Fullkomin tækni - Nýjungagirni -
Sjónvarpið - Hæft starfsfólk. Einnig
má nefna, gott málefni - markaðsfærsla -
sölustaðir.
Þetta beinlínukerfi og
sjónvarpið eru sjálfsagt stærstu liðirnir.
Það skapar spennu og eftirvæntingu.
öll fjölskyldan safnast saman fyrir
framan sjónvarpið í leik þar sem hver
um sig er virkur þátttakandi með því að
velja sínar eigin tölur í hvert skipti.
Það er kannski dálítið merkilegt að við
erum þau fyrstu í Evrópu sem notum
svona beinlínukerfi fyrir Lottó sem
gerir það að verkum að við vitum strax
hver vinningsupphæðin er, hvernig hún
skiptist og svo framvegis. Þetta kerfi
er fyrir hendi í Bandaríkjunum, Kanada,
Singapore og í nokkrum löndum S-
Ameríku.”
-Varðandi Sjónvarpið. Nú hafa
verið nokkrar umræður um það hvort
réttlátt væri að Getspá fengi ein allra
happdrætta aðgang að besta tíma í
Sjónvarpinu, samkeppnin væri ekki á
jafnréttisgrundvelli. Hverju svarar þú
þessu?
"Ég veit ekki til þess að hin
happdrættin hafi farið fram á að birta
útdrátt í Sjónvarpi. Við fórum fram á
það og fengum jákvætt svar. Svo
einföld er staðan í dag. En svo verður
líka að taka það með í reikninginn að
Lottóið er eins og skapað fyrir
sjónvarp. Ólíkt hinum hefðbundnu
miðahappdrættum velur þátttakandi í
Lottóleiknum tölur í hvert skipti, fyrir
hvern útdrátt. Og það þurfa ekki að
líða nema nokkrir klukkutímar, jafnvel
innan við klukkutími, frá því hann
velur sér tölur og þar til úrslit eru
kunn. Þetta dregur fjölskylduna saman.
Og spennan er allt öðruvísi. Við sjáum
vinningstölurnar ákvarðast á
sjónvarpsskjánum.”
Lottó á rás 2
-Og verður Lottóið áfram á
sjónvarpsskjánum á
laugardagskvöldum?
"Já", svarar Vilhjálmur. "Við
höfum gert samning við Sjónvarpið þar
um."
-En hvað með sumarið?. Nú
vitum við að lífsmynstur þorra
almennings breytist mjög að sumri til,
til að mynda með sumarleyfum, meiri
útiveru og ferðalögum.
"Jú, mikil ósköp. Við höfum
velt þessu fyrir okkur og erum með
ákveðnar áætlanir. Þar má nefna að við
erum í samningaviðræðum við
Ríkisútvarpið um að fá að samtengja
Lottóþáttinn á laugardagskvöldum við
Rás 2, þannig að fólk sem er í
sumarbústað, tjaldi eða á ferðalagi geti
fylgst með. Eins og þú nefndir verður
geysi mikill fjöldi fólks á ferðalögum í
sumar, að minnsta kosti fjarri
heimilum. Við viljum ekki rjúfa
sambandið við þetta fólk. Við ætlum
að fjölga sölukössum að miklum mun
um Iandið þannig að fólk þurfi ekki að
fara langar leiðir til að skila af sér
miðum. Og reyndar eru sífellt að
bætast við íleiri og fleiri kassar."
-Hvað með kynninguna á
Lottóinu? Nú hefur hún verið í nokkuð
föstum skorðum að undanförnu.
"Sumarkoma og breyttar
aðstæður í kjölfar þess, kalla á nýja
kynningu og við höfum ýmislegt í
bígerð sem kemur í ljós síðar. En ég
skal nefna að við ætlum að setja upp
ljósaskilti víða við sölustaði,
svokölluð "Starlite" skilti með
blikkandi ljósum. Lottóið á ekki að
fara fram hjá neinum."
"BMW"
Vilhjálmur segir áhugann fyrir
Lottóinu alveg gífurlegan. Sem dæmi
um það segir hann að til þeirra hafi
komið ýmsir menn með ólík erindi.
Vilhjálmur kallar þá íslenska
hugvitsmenn. "Það var einn sem kom
til mín um daginn og sagðist skyldu
auglýsa Lottóið á bílnum sínum fyrir
okkur, með flennistórum auglýsingum,
fyrir 170 þúsund krónur út árið. Ég
spurði hann hvernig bíl hann væri með.
"BMW, mjög fallegan bíf', svaraði
maðurinn. Ég spurði hann þá hvort
hann væri með bílinn hérna fyrir utan
húsið. Nei, svo var nú ekki "Ég á nú
eiginlega eftir að kaupa hann", var
svarið hjá þessum manni!
Hann ætlaði sennilega að
fjármagna bílakaup sín með því að
auglýsa Lottóið út árið!", segir
Vilhjálmur brosandi.
"Þetta er nú sjálfsagt eitt dæmið
um það hversu frumlegir menn geta
verið í því að ná sér í aukatekjur",
bætir hann við.
"En svo hafa komið hingað
ýmsir aðilar með hugmyndir að
fjölbreyttum tækjabúnaði tíl að velja
tölurnar. Sumar af þessum
hugmyndum hafa verið býsna
frumlegar. Aðalmálið er þó hins vegar
að þetta sýnir áhuga manna fyrir
skemmtilegum leik sem hitt hefur í
mark", segir Vilhjálmur að lokum.
IH
8