Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1987, Qupperneq 26

Skinfaxi - 01.04.1987, Qupperneq 26
Eimir við Landsmótssvæðiðl990. einnig til Landsmótsins 1990 þar eð við höfum tekið að okkur umsjón og skipulag þess. Við höldum sem sagt 20. landsmót UMFÍ að Varmá í Mosfellssveit árið 1990. Aðstaðan í Mosfellssveit er í raun mjög góð til þess að halda landsmót. Það er hægt að koma öllu fyrir á sama svæðinu. 8 brauta völlur úr gerviefni að Varmá Við stefnum að því að koma upp frjálsíþróttavelli með 8 brautum sem verði lagðar gerviefni, að Varmá. Þetta er auðvitað aðeins hugmynd nú og hún er dýr í framkvæmd. En með því að hafa virkilega trú á því að þetta verkefni takist, þá tekst það", segir Einar, af mikilli sannfæringu. "En annars er aðstaðan að Varmá mjög góð, hefur alla burði til að þar megi koma á glæsilegu Landsmóti. Það er allt þarna á staðnum. Það má segja að með því að ganga fyrir eitt hom sé maður kominn á næsta svæði. Þá má nefna að við stefnum að því að karate verði tekin inn sem að er víst óhætt að segja að Sumarbúðirnar á Reykjum í Hrútafirði hafi slegið í gegn hjá yngri kynslóðinni. Fyrsta starfsár þeirra var í fyrra og sóttu þá 150 krakkar um vist í þeim. Þá komust 60 krakkar að. Nú hafa hins vegar 320 krakkar sótt þar um vist, aðstandendur ætla að reyna að auka eitthvað fjöida krakkanna en þeir verða þó varla fleiri en 75. Það voru þrjú Ungmennasambönd sem hófu reksturinn í fyrra, USAH, USVH og HSS. Nú hefur fjórða sambandið, UDN, bæst í hópinn. Landsmótsgrein 1990. Nú er hún komin inn sem sýningaratriði. En karate er í geysilegri sókn og á skilyrðislaust erindi á Landsmót. En í þessu sambandi koma auðvitað íþróttir eins og handbolti karla og knattspyma kvenna, upp í hugann. Þessar íþróttir eru ekki á Landsmóti í dag. Það hlýtur hins vegar að verða krafan í framtíðinni Sigurður B. Guðmundsson, kennari á Reykjum, einn helsti hvatamaðurog skipuleggjandi búðanna, var spurður að því hverju þessi mikli áhugi sætti. "Mér sýnist ástæðan vera þriþætt", svaraði Sigurður. "Ein ástæðan er sú að við höfum mikinn fjölbreytileika, ekki aðeins hefðbundnar íþróttir heldur einnig gönguferðir, hestamennsku og meira að segja tölvunámskeið. Önnur ástæðan er sú að þetta hefur fengið ágæta kynningu, við höfum farið í skóla á sambandssvæðunum fjórum og að allar íþróttir sem eru stundaðar innan UMFÍ verði á Landsmóti. Með því verða allir ánægðir og Landsmótið betra og fjölbreyttara. Og ég þarf auðvitað ekki að taka það fram að við stefnum að því að vinna Landsmótið 1990", segir Einar brosandi. IH Ung menna búðir sagt krökkum um hvað þessar búðir snúast. Svo hefur það sjálfsagt mikil áhrif að Pétur Pétursson, knattspyrnu- maður, verður gestur í einn dag á hverju hinna þriggja námskeiða. Við erum einnig með leið- toganámskeið samhliða þessu fyrireldri krakka. En fyrst og fremst reynum við að hafa þetta létt og skemmtilegt, við gætum þess að hefta börnin ekki of mikið með miklum aga þó hann sé auðvita nauðsynlegur að vissu marki. En við tökunt leikinn og skemmtilegheitin fram yfir einhverja ítroðslu", sagði Sigurður, en hann er einn leibeinenda. Námskeiðin eru þrískipt fyrir krakka á aldrinum 9 til 14 ára. Það fyrsta hefst 24. • maí og því síðasta lýkur 14. júní. Við segjum nánar frá þessum ungmennabúðum síðar í Skinfaxa. IH 26

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.