Skinfaxi - 01.04.1987, Qupperneq 30
viðfangsefna, þar sem íþróttirnar væru í
öndvegi. Til að sanna þetta markmið
töldum við að Landsmót UMFÍ mættu
og ættu beinlínis að stækka með
hreyfingunni, en þar voru aðrir ekki á
sama máli.
Eins og áður hefur komið fram
í þessari uppriíjun, ferðuðumst við
Sigurður mikið saman á þessum árum
og sóttum þá margar samkomur og
fundi ungmennafélaga vítt um iandið.
Það kom þá oft fyrir að Sigurður
kastaði fram vísu við slík tækifæri sem
góður rómur var gerður að. Enn einn
frábær hæfileiki framkvæmdastjórans,
enda kominn af landskunnum
hagyrðingum.
Nú þegar Sigurður Geirdal
lætur af störfum hjá UMFÍ er okkur
ungmennafélögum efst í huga þakklæti
og stjórn UMFÍ hefur þakkað honum
störfin. Nú hefur Sigurður tekið til
starfa á nýjum félagsmálavettvangi,
kannske ekki svo ýkja óskildum að
ýmsu leyti. Við óskurn honum
velfarnaðar þar og í hverju því starfi
sem hann á eftir að leggja hug og hönd
að á komandi árum. Enda þótt mikið
starf sé nú að baki er Sigurður Geirdal
enn maður á besta aldri eins og sagt er.
Hann er vel undir framhaldið
búinn, á viðburðaríkum og erilssömum
starfsferli sínum hjá UMFÍ hefur hann
með öðru lokið embættisprófi í
viðskiptafræði frá Háskóla íslands og
að minnsta kosti staðið í
húsbyggingum tvisvar.
Þegar ég horfi yfir farinn veg
með þessunt ágæta samherja vottar
auðvitað fyrir nokkurri sjálfsánægju
eins og greinarkorn þetta ber með sér,
en í mfnum huga var bjart yfir því öllu,
enda sögðum við oft einum rómi:
"Það er bjart fyrir stafni og byr
í seglum"
og við trúðum því.
Hafsteinn Þorvaldsson,
fyrrverandi formaður UMFÍ.
á ári
Afgreiðsla Öldugata 14 - 101
Símar: 91-12546 og 91-14317
30