Skinfaxi - 01.04.1987, Page 32
»
Ársæll Þórðarson.
stigs námskeið fyrir almenning og
síðan styttri námskeið sem væru þá
sérhæfð. En aðalmálið er að koma
undir skólann þeirri undirstöðu að hann
geti rekið sig áfram.
Ég hef sjálfur þá von að á
næstu þremur árum takist að koma
skólastarfinu á varanlegan grunn.
Fyrsta stigið verði að byggja upp
"kennarakerfið" um landið. Annað
stigið verði síðan að auka
upplýsingastreymið og kynni meðal
félagsmálakennaranna sjálfra í gegnum
fræðslu og annað. Þriðja stigið er
síðan föst skólastarfsemi hér í
Reykjavík, eins konar kennslumiðstöð.
Kennarar gætu þá þróað efni sitt hér og
fengið þjálfun eða endurmenntun.
Námskeiðin yrðu þá auglýst og opin
þeim sem vildu. Með slíkri
kennslumiðstöð sýnist mér að skapast
gæti ágæt festa í starfið. í kringum
kennslumiðstöðina má síðan koma upp
nýtísku kennslugögnum sem hægt væri
að lána út um land.
Að lokum vil ég segja, að þeir
sem stofnuðu skólann og mörkuðu
stefnuna í upphafi hafa að mínu mati
sýnt ótrúlega framsýni og okkur sem
nú stjórnum skólanum er mikill vandi á
höndum að leiða starfið sem
brautryðjendurnir mótuðu."
"Fjögur ár til aldurs UMFÍ"
Nýlega barst Skinfaxa bréf frá Ingimundi
nokkrum Ingimundarsyni sem varð 76 ára hinn 30.
mars síðastliðinn. Segist hann vera "Tveim árum
meira bam en Skinfaxi og vant(i) einnig 4 ár til
aldurs U.M.F.Í."
Ingimundur býr nú á Svanshóli á Ströndum
og hann sendi Skinfaxa og Ungmennafélagi íslands
kveðju sína í bundnu máli. A undan því var hins
vegar svohljóðandi texti (birtur með leyfi
Ingimundar):
"Gamli heimilisvinur, Skinfaxi.
Þar sem ég verð 76 ára eftir 10 daga, tveim árum
meira barn en Skinfaxi og vantar einnig 4 ár til aldurs
U.M.F.Í., kom meðfylgjandi samsetning úr penna mínum í
morgun.
"Enginn veit sína ævina fyrr en öll er", segir gamall
málsháttur svo ég bíð ekki eftir áttræðisafmælinu hjá
Ungmennafélagi íslands, sem að réttu lagi er í ágústbyrjun
n.k.
Sendi þetta afmælisstef nú og þar með þakkir mínar
fyrir þá hvatningu sem það hefur veitt samtíðinni að hverju
sinni til að reynast sannir íslendingar í athöfnum og afrekum.
Slík samtök eru mikils virði. Ekki hvað síst í hinum
dreifðu byggðum, sem nú er sóttst að af skilningslitlum
öflum, svo ekki sé meira sagt.
Með kærri kveðju.
Ingimundur Ingimundarson frá Svanshóli.
Til Ungmennafélags íslands á
áttræðisafmælinu, 1987.
Áttatíu ára flokkur
æskumanna vítt um land
aldurinn ber ekki nokkur
ellimörk, né vinnustrand.
U.M.F.Í. mun alltaflifa
ungt og ferskt, með kraft og þor.
Um það munu skáldin skrifa,
Skinfaxa, - og gengin spor.
Eins og forðum söngva syngjum
samtíðinni hvatnings Ijóð.
Ellidapra aftur yngjum.
Afreksbörn á kjarna-þjóð.
Þróttur aldrei þrjóti landann
þó að stundum andi kalt.
Æskan leysir allan vandann.
íslandi skal helgað allt."
Skinfaxi þakkar Ingimundi auðmjúklega þessar
hugheilu kveðjur, fyrir sína hönd og Ungmennafélags
íslands.
32