Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 34

Skinfaxi - 01.04.1987, Síða 34
26. Rxal ! Tal eygir reit á c6 fyrir riddarann. Hann hefur kannski lært eitthvað af Jóhanni, sbr. síðasta tölublað Skinfaxa, er við sáum hann koma sér upp sterkum reitum í herbúðum andstæðingsins ? 26. -f5 27. Bh6 Rg7 28. Rb3 f4 29. Ra5 Db6 30. Hcl Ha8 31. Dc22 Rce8 32. Db 3 Bf6 33. Rc6 Rh5 34. Db2 Bg7 35. Bxg7 Kxg7 ? Jóhann á aðeins einn leik eftir til þess að máta en einn leikur í skák getur verið hei) eilífð. Nú gerir Tal smekk- lega út um taflið. 41. RG4+ ! Kf7 42. Rh6+ Ke7 43. Rg8+ Og nú gafst Jóhann upp. eftir 43. - K17, eða 43. Ke6, kórónar töfra- maðurinn sýninguna með 44. Rg5 mát. "Fyrir þá sem ekki hafa skilið af hverju Tal er kallaður töframaðurinn frá Riga er hér skýrt dæmi um af hverju hann hefur fengið þá nafngift" segir í móts- blaðinu í formála að þessari skák og bætt er við: "Jóhanni til huggunar skal bent á að það þarf tvo góða skákmenn til að tefla jafngóða skák og þessi er. Hún á eftir að fara víða". íþróttamaður Rangárvallasýslu Systkinin Bjarki og Guðbjörg Viðarsbörn með verðlaun sín. Árleg útnefning íþróttamanns Rangárvallasýslu fór fram á Hvolsvelli í febrúar og var Guðbjörg Viðarsdóttir, UMF Dagsbrún, A-Landeyjum, kjörin íþróttamaður ársins 1986. Það er Kiwanisklúbburinn Dímon sem stendur fyrir þessari útnefnngu og veitir hann að auki verðlaun fyrir mestar framfarir og til besta íþróttafélagsins í sýslunni. Guðbjörg keppti í frjálsíþróttum, í flokki meyja, 15 til 16 ára. Hún stórbætti HSK metin í kúluvarpi, bæði utan- og innanhúss, varð Islandsmeistari í kúluvarpi og kringlukasti og vann besta afrek í Bikarkeppni 16 ára og yngri. Þá náði hún besta árangri á landinu í kúluvarpi og kringlukasti í sínum flokki. Og það sem gerir árangur Guðbjargar enn glæsilegri er að hún var á yngra ári í sínum flokki á síðastliðnu ári. Bjarki Viðarsson, UMF Dagsbrún, fékk verðlaun fyrir mestar framfarir í íþróttum árið 1986. Hann er bróðir Guðbjargar. Hann keppti í frjálsíþróttum, í flokki sveina 15 til 16 ára. Bjarki átti lengsta kast á landinu í kúluvarpi og kringlukasti og annað lengsta í spjótkasti í sínum flokki. Þá vann hann besta afrek á Íþróttahátíð HSK og varð íslandsmeistari í kúluvarpi og kringlukasti utanhúss. Innanhúss keppti hann upp fyrir sig og varð íslandsmeistari í kúluvarpi í flokki 17 til 18 ára. UMF Baldur á Hvolsvelli var valið besta íþróttafélag Rangárvallasýslu, 1986. 34

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.