Skinfaxi - 01.04.1987, Page 36
Skólakeppni USÚ og USVS
Skólakeppni USÚ og USVS var
haldin dagana 27. til 28. mars
síðastliðinn í íþróttahúsi Heppuskóla,
Höfn, Hornafirði með þátttöku um það
bil 150 keppenda. Þctta var í þriðja
skiptið sem mótið var haldið í
austursýslunni en það er haldið til
skiptis ár hvert í Skaftafellssýslunum
tveimur, austur og vestur.
Keppt er í körfubolta, úrval úr 7.
8. 9. bekk og frjálsíþróttum
(langstökki, þrístökki, hástökki,
kúluvarpi og víðavangshlaupi) bæði hjá
strákum og stelpum. Einnig er keppt í
skák, fimm manna sveit frá hverjum
skóla. Verðlaunapeningar eru veittir
fyrir 1. sætið í körfubolta og skák en 1.
2. og 3. sætið í frjálsíþróttakeppninni.
Stigahæstu skólamir í hverjum
aldursflokki fá bikar en flokkamir eru
þrír, 4. og 5. bekkur, 6. og 7. bekkur
og 8. og 9. bekkur. Þá er einnig
veittur bikar þeim skóla sem er með
hæstan samanlagðan stigafjölda.
Mótið hófst mcð skák og
körfubolta á föstudagskvöldi. Mikil og
góð stemning var á áhorfendapöllunum
og mátti heyra í lúðrum og trommum,
veifur og fánar gegndu einnig sínu
hlutverki.
Á laugardegi kl. 12.45
stundvíslega var mótið síðan sett
formlega af heiðursfélaga USÚ, Torfa
Steinþórssyni frá Hala í Suðursveit.
Að setningu lokinni hófst
frjálsíþróttakeppnin og mátti þar sjá
mjög jafna og skemmtilega keppni.
Má geta þess að tímaseðill keppninnar
sem Ásmundur Gíslason gerði, stóðst
fullkomlega.
Oft vill það brenna við að fátt er
um starfsfólk en nú brá svo við að
margar góðar hendur mættu á staðinn
svo allt gekk hratt og vel fyrir sig.
Ásmundur Gíslason sá um mótsstjórn
og gerði hann það alveg einstaklega
vel. Á hann þakkir skildar svo og allt
það starfsfólk sem stóð í þessu mcð
okkur.
Að lokum vil ég segja það að
þetta mót er lýsandi dæmi um það góða
samstarf sem er á milli USÚ og USVS
svo og skólanna á þessu svæði.
Fyrir hönd USÚ,
Rósa Á. Valdimarsdóltir.
Úrslit í skólamóti USÚ
og USVS
Samanlögð stig fyrir skóla:
1. Nesjaskóli:
2. Hafnarskóli:
3. Klausturskóli:
4. Víkurskóli:
5. Ketilstaðaskóli:
201 stig
161 1/2 stig
129 1/2 stig
112 stig
32 stig
Hluti keppenda og liðsstj'óra á mótinu. Myndir, Baldur Kristjánsson.
í flokki 4. og 5. bckkjar varð
Hafnarskóli í 1. sæti mcð 78 stig.
Nesjaskóli vann flokk 6. og 7. bckkjar
mcð 57 stig og 8. og 9. bckkjar mcð
84 stig.
Úrslit í einstökum greinum.
Skákkeppni úrval skipað 5
krökkum.
Höfn : Vík 2 : 3
Nes : Höfn 1/2 : : 4 1/2
Nes : Vík 2 : 3
1. Hafnarskóli: 6 1/2 V.
2. Víkurskóli: 6 V.
3. Nesjaskóli: 2 1/2 V.
Körfubolti stelpur. Úrval úr 7.
8. og 9. bckk.
Nes : Höfn 0 - 4
Vík : Klaustur 2 : 28
Úrslit:
1.-2. Höfn - Klauslur 4 : 20
3.-4. Vík - Nes 4 : 12
1. Klausturskóli
2. Hafnarskóli
3. Nesjaskóli
4. Víkurskóli.
Körfubolti strákar. Úrval úr 7.
8. og 9. bekk.
Nes - Klaustur 3 : 29
Höfn - Vík 22 : 2
ÚrsliL'
1.-2. Klaustur - Höfn 21 : 6
3. - 4. Nes - Vík 10:1
1. Klausturskóli
2. Hafnarskóli
3. Nesjaskóli
4. Víkurskóli
36