Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1987, Page 39

Skinfaxi - 01.04.1987, Page 39
BIKARGLÍMA GLÍ. • • Oraggir sigurvegarar Bikarglíma Glímusambandsins var haldin laugardaginn 21. febrúar í íþróttahúsi Kennaraháskólans. í bikar- glímu er keppt í tveimur flokkum, ílokki 19 ára og yngri og flokki fullorðinna. Yngri flokkur I yngri flokknum voru 9 kcppendur mættir til leiks. Þrír voru laldir sigurstranglegastir. Það voru Lárus Björnsson HSÞ sem sigraði í fyrra, Amgeir Friðriksson HSÞ sem vakti mikla athygli á síðustu lands- flokkaglímu og Jóhannes Sveinbjörns- son HSK sem sigraði í Fjórðungsglímu Suðurlands í haust. Jóhannes féll í glímum sínum við þá félaga og var þá ljóst að baráttan um sigurinn slæði milli Arngeirs og Lárusar. Amgeir féll óvænt fyrir KR-ingnum Jóni Valssyni og var þá eina von Arngeirs að leggja Lárus og sigra hann síðan í aukaglímu. Til þess kom ekki því Lárus glímdi glímu þcirra af mikilli skynsemi og stefndi á janfglími sem varð. Lárus slóð því uppi sem bikarmcistari í yngri ílokki annað árið í röð. Var hann vel að sigrinum kominn, glímdi af kunnáttu og skynsemi og stóð vel að glímunni. Amgeir glímdi snarplcga framan af en úthaldið virtist dala í lokin. Að lokinni glímu var honum afhentur bikar til eignar frá stjórn GLI, sem nýlega kaus Arngeir einróma efnilegasta glímumann síðasta árs. Arngeir beitir mikið skæðu leggjarbragði scm erfitt er að varast. Hann var lægstur í loftinu af keppendum en greinilega einn af þeim sterkustu. Jóhannes varð í þriðja sæti. Hann virlisl óöruggur framan af og tapaði þá fyrir Amgeiri og Lárusi. Síðan jókst honum ásmegin og var aldrei spurningin um úrslit, heldur hvcrsu lengi andstæðingunum tækist að tefja hið óumflýjanlega. Jóhannes beitir mikið vinstri fótar klofbragði sem cr óvenju hátt og glæsilega tekið enda Jóhannes rúmlega 1.90 m. á hæð. Jón B. Valsson er vel sterkur og glímir yfirvegað en stundum nokkuð þungt. Gunnar Gunnarsson er ört vaxandi gímumaður. Hann er talsvert fjölhæfur og tekur brögð á báða vegu jafnt, sem er afar sjaldgæft. Gaman var að sjá Austfirðinga á ný á glímuvellinum eftir nokkurt hlé. Kári Arnþórsson er nýliði sem kom skemmtilega á óvart. Hann var greini- lega léttasti maðurinn í flokknum en alls ófeiminn að sækja á þá stærri og sterkari. I heildina var keppnin í þessum flokki bráðskemmtileg og fjörleg og þarna eru margir framtíðarglímumenn. Eldri flokkur. í flokki fullorðinna voru sjö keppendur. Ólafur Haukur Ólafsson glímukappi íslands og bikarhafi frá fyrra ári þótti að vonum sigurstrang- legastur. Hann varð líka öruggur sigurvegari í glímunni og var sigur hans aldrci í hættu. Ólafur tekur mjög glæsileg hábrögð, vinstri fótar klofbragð og sniðglímu á lofti og skiptir oft snarlega á milli með afgerandi árangri. Jón Unndórsson varð annar og gekk næst Ólafi með hábrögðin. Jón lætur hvergi deigan síga þótt hann sé um áratug eldri en Ólafur og fleiri glímukapparnir og sýnir þar gott fordæmi. Þriðji varð Helgi Bjamason. Helgi er lágur í loftinu en samanrekinn og kappsfullur glímumaður. Hann er eitilharður vamarmaður og ekki tókst fleirum að koma honurn af fótunum en tveim fyrmefndum köppum sem eru tvímælalaust sterkustu glímumenn landsins. Kjartan Lárussson er nýliði í gímunni þótt kominn sé um þrítugt. Kjartan stóð sig vel í baráttunni við þá eldri , enda sterkur vel og þrckvaxinn. Hjörtur Þráinsson deildi fjórða sætinu með Kjartani. Hjörtur er gamalreyndur keppnismaður þrátt fyrir ungan aldur og sérlega skæður í lágbrögðum með eldsnöggan hælkrók sem aðalvopn. í heild urðu úrslit í þessum flokki svipuð og reiknað var með og eftir styrkleika glímumanna. Úrslit í heild urðu þessi: Eldri flokkur: 1. Ólafur H. Ólafsson KR 2. Jón Unndórsson L 3. Helgi Bjamason KR 4.-5.Kjartan Lámsson HSK 4.-5.Hjörtur Þráinsson HSÞ 6.-7. Jón Kerúlf UÍA 6.-7.Ásgeir Víglundsson KR Yngri flokkur: 1. Lárus Bjömss. HSÞ 7 1/2 V 2. Amgeir Friðrikss. HSÞ 6 1/2 3. Jóhannes Sveinbjöms. HSK 6 4. Jón B Valsson KR 4 5. Gunnar Gunnarss. HSK 3 1/2 6. Kári Amþórsson UÍA 3 7.-8.Kjartan Ásmundsson HSK 2 7.-8.Jóhann G. Friðgeirss. HSK 2 9. Hörður Ó Guðm. HSK 1 1/ J.í 39

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.