Skinfaxi - 01.12.1988, Síða 5
UMSB tók nú í desember í notkun nýtt húsnæði í Borgamesi undir
starfsemi sína en fyrra húsnæði hafði fyrir löngu verið „sprengt" utan af
starfsemi sambandsins. Reyndar var það staðsett í bílskúr
framkvæmdastjóraUMSB, Ingimundarlngimundarsonar. Húsnæðiðer
allt hið glæsilegasta og hentar mjög vel starfsemi UMSB. Það er um 90
fm að stærð. Myndin hér að ofan er tekin við formlega opnun
húsnæðisins. Þar voru mættir núverandi og fyrrverandi stjómarmenn
UMSB, formaður og framkvæmdastjóri UMFÍ og fulltrúar aðildarfélaga
UMSB. Stærsta aðildarfélag UMSB, Skallagrímur í Borgamesi, íhugar
nú að taka jafnvel á leigu herbergi á sömu hæð og UMSB...
IK er eitt þeirra félaga á svæði
UMSK sem er með íþróttaskóla.
En sérstaða skóla IK felst í því að
skólinn er ætlaður börnum á
aldrinum 5 - 8 ára og kynntar eru
fimm íþróttagreinar, knattspyma,
handbolti, tennis, körfubolti og
hópleikir. Allir aðrir sambærilegir
skólar bjóða aðeins upp á eina
íþróttagrein og er það þá bundið
við deildina eða félagið sem heldur
skólanum úti. Sérstök áhersla er
lögð á að allir kennarar séu
menntaðir íþróttakennarar.
Foreldrum er boðið að koma með
bömunum og taka jafnvel þátt í
leikjunum með þeim. Skólinn er
hálfs árs skóli...
KSI hélt ársþing sitt fyrir
skömmu á Selfossi. Meðal þess
sem þar var rætt, var ráðning næsta
unglingalandsliðsþjálfara íslands í
knattspymu. Sú staða hefur nú
verið auglýst laus til umsóknar.
Lárus Loftsson hefur nú gegnt
þessu starfi í ein 14 ár og rennur
„kjörtímabil" hans út nú í ár. Það
munu vera tæplega tíu manns sem
sótt hafa um þetta starf...
íslenskar Getraunir hafa nú
verið starfræktar f nýju formi
(Lottókassa form nefna sumir það)
um nokkurt skeið. Það sem telst
auðvitað einna jákvæðasta
breytingin er að nú sitja nær allir
landsmenn við sama borð (þ.e. þeir
sem komast fyrirhafnarlítið í
lottókassa, sem eru auðvitað ekki
allir landsmenn) hvað varðar
þátttöku í leiknum. Þegar lottóið
fór af stað hrundi salan á
Getraunaseðlum saman víða um
land en hún hafði víða fært
félögum nokkrar tekjur. Með nýja
forminu getur fólk nú styrkt sín
félög hvar sem það er statt á
landinu með því einu að merkja við
á sérstökum stað á seðlinum. En
hvað hefur fólk gert mikið af því að
styrkja sitt félag? Hjá íslenskum
Getraunum fengust þær
upplýsingar að í fyrstu leikviku
hefði hlutfall þeirra sem merktu
seðla sína ákveðnu félagi verið
53%. Síðan hefur þetta farið
stigvaxandi. Eftir þriðju leikviku
var þetta hlutfall komið í 62% og
eftir þá fimmtu í 70%. Félög hafa
því tekið vel við sér með þetta og er
vonandi að sem flestir merki
seðlana sínu félagi...
Eins og menn rekur eflaust minni
til var sagt frá því hér á þessum
síðum fyrir nokkru að „þau tíðindi
hefðu orðið að stjórn eins
ungmennafélagsins á Suðurlandi,
Dagsbrún, væri ófrísk. Hér eru
frekari fréttir af framgangi mála
þar. Sagt er frá því í nýju og
glæsilegu „fréttabréfi" HSK,
Skarphéðni, að nú sé formaður
Dagsbrúnar ekki lengur ófrísk.
Agnes Antonsdóttir heitir
formaðurinn og eignaðist hún
dóttur þann 17. september
síðastliðinn. Þá segir svo í
Skarphéðni: „Forveri Agnesar í
embætti eignaðist einnig dóttur í
sinni valdatíð. Þetta er íhug-
unarefni. Þær konur í Dagsbrún,
sem ekki kæra sig um fjölgun ættu
ekki að sækjast eftir kosningu í
Skinfaxi
5