Skinfaxi - 01.12.1988, Síða 20
Gluggað í nýja
Landsmótsreglugerð
Það líður að Landsmóti. Sumum finnst
í fyrstu að þessi fullyrðing sé nú full
snemmbær. Svo er þó ekki. Það eru
aðeins 18 mánuðirtil Landsmóts. Fjöldi
fólks um allt land er þegar farinn að
undirbúa sig undir Landsmótið í
Mosfellsbæ sem verður tímamóta
Landsmót þó ekki væri nema í ljósi þess
að í frjálsíþróttakeppninni verður keppt í
fyrsta sinn við bestu hugsanlegu
aðstæður, á gerviefni. Og það eru
auðvitað tímamót að það skuli vera
Landsmót ungmennafélaganna sem
kemur þessu í verk, ef svo má segja.
En Landsmótið sjálft verður með
nokkuð öðrum blæ en áður hefur verið.
Það er nú haldið á höfuðborgarsvæðinu,
það eru komnar inn nýjar greinar eins og
fimleikar og knattspyma kvenna.
Nýr stigaútreikningur
Og síðast en ekki síst, eru veigamiklar
breytingar gerðar á stigaútreikningi
Landsmótsins. Nú hljóta sex fyrstu í
hverri grein stig. Fyrsta sæti gefur 6 stig.
Annað sæti gefur 5 stig, þriðja sæti gefur
fjögur stig og svo koll af kolli. Verði
einstaklingar eða sveitir jafnar skiptast
stig að jöfnu milli þeirra.
í 16. grein segir að „heildarstigafjöldi
sambandsfélaga reiknast á eftirfarandi
hátt fyrir hverja íþróttagrein. Fjöldi stiga
fer eftir því hve margir sambandsaðilar
UMFI taka þátt í viðkomandi íþróttagrein
og skulu stigin alltaf hlaupa á stakri tölu.”
Síðan er m.a. tekið dæmi af því er 12
sambandsaðilar eru þátttakendur í
íþróttagrein. Þáhlýtursigurvegari 23 stig,
fyrir annað sæti fást 21 stig, fyrir það
þriðja 19 stig og svo framvegis niður úr.
Undantekning er hins vegar á þessu
hvað varðar sund og frjálsar íþróttir. Þar
er mikil breyting á reglugerð. í þessum
greinum gildir nú nefnilega tvöfalt vægi
að stigum. Hér em tvö dæmi, a) og b),
„Dæmi a) 7 sambandsaðilareru þátttak-
endur í íþróttagrein, sigurvegari hlýtur 26
Hrafnhildur Ósk og Vanessa Ósk,
fimleikastúlkur íGerplu, verða kannski á
Landsmótinu 1990.
stig, númer 2 hlýtur 22 stig og síðan 18,
14, 10, 6 og 2 stig..
Dæmi b) 12 þátttakendur eru þátttak-
endur í íþróttagrein. Sigurvegari hlýtur
46 stig, númer tvö 42 stig og síðan 38,34,
30, 26, 22, 18, 14, 10, 6 og 2 stig.
Sá sambandsaðili sem flest stig fær úr
öllum greinum samanlagt samkvæmt
ofanrituðu hlýtur sæmdarheitið:
Landsmótsmeistari UMFI.”
Þannig hljóðar þessi nýjung sem getur
breytt ýmsu.
Af þessu má til dæmis sjá að það sem
fræðilega var mögulegt áður; að vinna
Landsmótið á tveimur greinum, er ekki
lengur hægt. Þessar nýju reglur um
stigaútreikning hvetja til meiri breiddar,
þátttöku í fleiri greinum og þar með meiri
útbreiðslu íþróttanna.
Nýjar Greinar
En hvað er fleira nýtt? Eins og áður var
tekið fram eru tvær nýjar greinar á
Landsmóti: Fimleikar og knattspyma
kvenna. Nú stunda að minnsta kosti 5
héraðssambönd og félög með beina aðild
að UMFI fimleika. I reglugerð segir að
a.m.k. 5 sambandsaðilar þurfi að stunda
fimleika til að greinin geti talist gild á
Landsmóti. En skoðum aðeins 35. grein,
um fimleikakeppnina:
„Keppnin er flokkakeppni og er hverj-
um sambandsaðila heimilt að senda
hámark 6 keppendur til keppninnar.
Keppt skal í 4 greinum almennra fim-
leika, þ.e. stökki yfir hest,
dýnustökksæfingum, stökki á litlu
trampólíni og gólfæfingum með tónlist.
Stigahæsti sambandsaðili hlýtur
sérverðlaun”.
Reglur um knattspymu kvenna eru eins
og með handknattleik kvenna,
körfuknattleik kvenna og blak karla.
Greinin hljóðar þannig: „I hverri grein
skal mynda tvo riðla, A og B, og leikin
einföld umferð. Sama fyrirkomulag skal
hafa og í knattspymunni. Mótshaldara er
heimilt að láta fara fram forkeppni ef
þurfa þykir."
Lágmörk
Að lokum má nefna enn eina nýjungina
sem er um lágmörk. Það er 5. grein og
hljóðar hún svo:
„Senda má hámark 3 keppendur í hverja
einstaklingsgrein og eina sveit í boðsund
og boðhlaup. í frjálsíþróttum og sundi
skal stjóm UMFÍ setja lágmark um árang-
ur keppenda sem héraðssambönd eru
hvött til að hafa til viðmiðunar þegar
keppendur eru valdir á Landsmót.
Lágmörk skulu gefin út fyrir 1. júní árið
fyrir Landsmót.”
Lágmörkin eru til komin vegna mikils
fjölda keppenda í nokkmm greinum svo
erfitt hefur verið að koma fyrir keppni á
Landsmótinu.
IH
20
Skinfaxi