Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1988, Síða 23

Skinfaxi - 01.12.1988, Síða 23
sjálfboðaliðastörfum í fjáröflun. Deildir Þróttar skiptast á um að hirða sorp bæjarbúa og fá fyrir það greiðslur frá Neskaupstaðarbæ. Auk þess hafa blakarar allarklær úti til að ná í fjármagn. Iðulega er blakliðið að sjá í lestum flutnin- gaskipa þegar von er um góðan pening í útskipun ásjávarafurðum. Síðastliðið vor réðst blakliðið í það þrekvirki að moka snjó úr sundlaug bæjarins. Þá var snjólagið svo mikið að 2 til 3 m snjólag var yfir sjálfu laugarkerinu. Það er trúlegt að Ju, hinum kínverska þjálfara Þróttar, hafi verið farið að líða eins og hann væri kominn heim til sín, til Kína, því á ferðinni voru bæði margar og misstórar hendur með skóflur, fötur, bala og alls kyns önnur áhöld. Þama varhandafli blakliðsinsbeitt í þágu sundíþróttar til ágóða fyrir blakdeildina. í blaki stendur hver leikur yfir í 3 til 5 hrinur að öllujöfnu. Það mætti samt segja að stundum séu hrinumar 5 til 7 Þrótti Nes.. Þá er fyrsta hrinan talin ferð til leikstaðar og síðasta hrinan ferð frá leikstað og eru þær að jafnaði lengstu og oft erfiðustu hrinumar. Að sjálfsögðu á þetta sama við öll þau ágætu 1 ið sem leggja á sig erfið ferðalög til að heimsækja blaklið Þróttar í Neskaup- stað. Sem betur fer virðist ekki vera skortur á vilja hjá leikmönnum annarra félaga til að heimsækja Neskaupstað. Þvert á móti bera leikmenn annarra liða fulla virðingu fyrir Þrótti Nes. Gallinn er bara sá að allt of fá félög iðka blakíþróttina þó reyndin sé sú að fáar greinar hópíþrótta hafa eins ríkulegt upp- eldisgildi jafnframt því að vera mjög skemmtileg íþrótt. Skólaíþróttin Það fer ekki hjá því að blakið komi við sögu í starfi Verkmenntaskóla Austur- lands. Ekkert er ofsagt þegar talað er um að blakið sé skólaíþrótt Verkmennta- skólans og það verðug skólaíþrótt. Það er með ánægju sem horft er fram hjá því að hefðbundið skólastarf kunni að raskast eitthvað þegar stór hópur nemenda Verkmenntaskólans heldur á leið út á hitt landshornið til að keppa við verðuga andstæðinga. Það rask jafnast út með þeim þroska sem unglingar öðlast við að takast á við bæði íþrótt sína og þessi vandasömu og erfiðu ferðalög til afskekktra byggða eins og Reykjavíkur og nágrennis. Albert Einarsson. 3.flokkur pilta íblaki hjá Þrótti. Fremri röðf.v: Vigfús Vigfússon,HansJóhannsson, Karl Ragnarsson, Sigurður Ólafsson og Halldór Sveinsson. Aftari röðf.v: Matthías Hilniarsson, Emil Gunnarsson, Ivar Kristinsson, KarlR. Róbertsson, Jóhann Sveins- son, Helgi Guðmundsson og Dagfinnur S. Ómarsson. Myndir Ari Benediktsson. 3. flokkur stúlkna í blakdeild Þróttar á Neskaupsstað. Fremri röð f.v: Þorbjörg Jónsdóttir, Sesselía Jónsdóttir, Anna Bergljót Sigurðardóttir og Anna Jónsdóttir. Aftari röðf.v: Stella Steinþórsdóttir, Sigríður Þórarinsdóttir, Vilhelmína Smáradóttir, Asta Lilja Björnsdóttir, Birna Sœvarsdóttir, Valdís Sigurþórsdóttir. Höfundw er skólastjóri Verkmenntaskóla Austurlands sem staðsettur er á Neskaupstað. Skinfaxi 23

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.