Skinfaxi - 01.05.1990, Síða 7
V I Ð T A L
„Þurfum að fjárfesta í
æsku landsins,”
- segir Vigdís Finnbogadóttir; forseti íslands.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands er verndari 20. Landsmóts
Ungmennafélags íslands, sem haldið
er í Mosfellsbæ 12.-15. júlí 1990.
Forsetinn heiðrarmótið með nærveru
sinni á fimmtudagsmorgun 12. júlí,
en þar mun hún flytja ávarp þegar
hátíðardagskrá mótsins verður sett.
Ritstjóri Skinfaxa lagði leið sína í
Stjórnarráð íslands og hitti þar forse-
tann okkar að máli.
Stjórnarráðshúsið er tignarlegt og
fallegt hús. Þar er ekki komið að
tómum kofanum, elskulegt og heil-
landi viðmót Vigdísar hefur heillað
alla sem til hennar þekkja.
Mérlá mikil forvitni á að vita hvenær
hún hefði kynnst störfum ungmen-
nafélagshreyfingarinnar og spurði
hana þvi hver hennar fyrstu kynni af
hreyfingunni hefðu verið.
„Égeralinuppafaldamótakynslóðinni
það er að segja gömlu ungmennafélags-
kynslóðinni, sem vann með miklum
metnaði að því að gera Island að frjálsu
og fullvalda ríki. Hjá henni heyrði ég
fyrst um ungmennafélögin, en síðan
kynntist ég þessari ágætu hreyfingu
þegar ég fór í sveit, 10 ára gömul, í
Gnúpverjahrepp í Árnessýslu. Þar tók
ég þátt í starfsemi ungmennafélagsins,
fór með hreppamönnum í útreiðaferðir
inn í Þjórsárdal og var áhugasamur
áhorfandi á íþróttamótum. Ég á fjarska
góðar minningar um Ungmennafélag
Gnúpverja frá þeim dögum.”
Ungmennafélagshreyfingin er
blönduð hreyfing, þar sein lögð er
áhersla á íþróttir og hreyfingu og
fjöldaþátttaka höfð að leiðarljósi.
Hreyfingin hefur margt á stefnuskrá
sinni, umhverfismál s. s. skógrœkt og
landhreinsun, leiklistarlíf er injög
öjlugt o.fl. Kjörorðin eru rœktun lýðs
og lands, h vað finnstþér um að blanda
saman þessum málaflokkum?
„Þetta eru málefni sem snerta Iffið
almennt og hafa mikið gildi í
þjóðfélaginu. Mér finnst prýðisgott að
öll þessi mikilvægu málefni eru á
stefnuskrá ungmennafélaganna og ótal
margir hafa kynnst íþróttum, leiklist,
umhverfismálum, skógrækt. félags-
málum, landhreinsun og fjölmörgu öðru
sem bætir mannlífið, í fyrsta sinn í
ungmennafélaginu sínu. Ungmenna-
félögin hafa blásið fólki anda í brjóst til
að vinna að jákvæðum málum og það
finnst mér einmitt svo fallegt og gott við
ungmennafélagshreyfinguna. Hún reif
Island og Islendinga upp úr nokkru
sinnuleysi er hún hóf störf af miklum
krafti upp úr aldamótum.”
Vigdís, þá reynir að hreyfa þig á
hverjum degi t. d. með því að fara í
göitguferðir. Heldur þú að viðhorf
fólks til almenningsíþrótta séu að
breytast? Erfólke. t. v. orðið ófeimnara
við að láta sjá sig við ástundun íþrótta?
„Já, hún er merkileg þessi tilhneiging
Islendinga að vera feimnir að sýna
mannlegar hliðar sínar. Erlendis eru
menn yfirleitt ekki feimnir á þennan
hátt, vegna þess að þar er margmennið
og menn eru ekki eins uppteknir af
náunganum eins og við höldum að aðrir
séu varðandi okkur sjálf. Nú er þetta til
allrar hamingju að breytast og það fer
ekki nokkur maður að hlæja þó einhver
sé að hlaupa úti á götu, enda er það ekki
hlægilegt. Það er ekki nokkur vafi á því
að sterkasti auður hverrar þjóðar, hvort
sem hún er stór eða smá, er heilbrigt
fólk sem er í góðri þjálfun til allra starfa.”
Skinfaxi
7