Skinfaxi - 01.05.1990, Qupperneq 19
LANDSMOTSSPA
Skinfaxi á ferð.
Tvær upprennandi sundkonur úr Reykjahverfi í Suður - Þingeyjarsýslu sýna
listir sýnar / sól og blíðu í sundlauginni við Heiðarbæ í apríl 1990.
Sigurður Einarsson verða með. En ef
svo verður raunin þá þurfa
Borgfirðingar ekki að kvíða miklu.
Aðrir góðir í röðum Borgfirðinga eru
Jón Valur Jónsson, Jón Bjarni
Björnsson, Hugrún Jónsdóttir,
Hólmfríður Dögg Guðjónsdóttir, Anna
Þórðardóttir Bachmann, Rakel Dögg
Sigurgeirsdóttir o.fl. Eg spái því að
Borgfirðingar verði í slagnum unt efstu
sæti á landsmótinu.
Lið UÍA
Sundfólkið á Austurlandi stendur
nokkuð illaað vígi hvað æfingaaðstöðu
varðar. Sundlaugar eystra eru einungis
opnar yfir sumarmánuðina svo að
sundíþróttin verður aldrei meira en
tómstundagaman á þeim slóðum, á
meðan ekkert er gert til að bæta
aðstöðuna fyrir sundfólkið. Það er óhætt
að fullyrða að ntikið er af efnilegu
sundfólki í Neskaupstað, á Reyðarfirði
og Seyðisfirði, en telja má víst að lið
UIA blandi sér ekki í toppbaráttuna á
Landsmótinu að þessu sinni.
Austfirðingar lenda nálægt miðju, verða
í baráttu við Vestur-Húnvetninga og
Þingeyinga um sæti.
Lið USVH
Vestur-Húnvetningar mæta með
þokkalegastaliðtilmótsins. Langflestir
eru ungir að árum en þrátt fyrir það eru
nokkrir sterkir sundmenn í þeirra röðum,
s.s. Kristjana Jessen, Elvar Daníelsson,
Óttar Karlsson og Hafdís Baldursdóttir.
Eru þau 13-15 áraen flestiraðriryngri.
Ef að líkum lætur ætti lið USVH að
lenda nálægt miðju í stigakeppninni.
Lið UMFN
Sundlið UMFN verður með á
Landsmótinu þótt lengi liti út fyrir að
svo yrði ekki. Fyrir nokkru var
sunddeildin lögð niður og stofnað var
Sundfélag Suðurnesja. Fyrir u. þ. b.
mánuði síðan var svo farið aftur af stað
með starfsemi sunddeildar UMFN en
helstu fyrrverandi sundmenn liðsins eru
nú í Suðurnesjaliðinu og eru því
Njarðvíkingar í rauninni, þessa dagana,
að byggja upp liðið frá grunni. Flestir
meðlimir félagsins eru mjög ungir að
árum, en sjálfsagt eru einhverjir gamlir
jaxlar, sem höfðu ekki fyrir því að færa
sig yfir í lið Suðurnesja á sínum tíma,
sem koma til með að styrkja liðið að
einhverju leyti.
Önnur lið s.s. FJÖLNIR, HSH, UDN,
HVÍ og ÓÐINN eru svo til óþekkt
stærð í sundheiminum og því fátt hægt
að segja um þau. Hins vegar ber að
varast að vanmeta þessi lið, því það
hefur sýnt sig að ný og áður óþekkt lið
hafa oft gert mikinn usla í
stigakeppninni á landsmótinu, eins og
t.d. Bolvíkingar á Akureyri 1981.
Það er tvennt sem skiptir höfuð máli
hvað styrk liðanna varðar en það er í
fyrsta lagi lið sem er fullntannað og
hefur mikla breidd, og í öðru lagi lið
með nokkra mjög góða einstaklinga.
Með þetta í huga er spá mín á úrslitum
í sundkeppninni á Landsmótinu þessi:
1. sæti UMSK
2. sæti UMFB
3. sæti HSK
4. sæti UMSB
5. -7 sæti HSÞ, USVH, ÚÍA.
Kveðjur,
Auðunn Eiríksson
Verðlaunagripir Landsmótsins
eru frá Fannari, Lækjartorgi
sími 16488-27540
Skinfaxi
19