Skinfaxi - 01.05.1990, Qupperneq 21
V I Ð T A L
Mér er mjög minnisstætt frá mótinu
hvað það var vel skipulagt og það að
ganga inn á svæðið í búningi fylktu liði
með fána var stórfengleg athöfn og
eftirminnileg. Við höfðum aldrei orðið
varir við svonaeldmóðeins og Sigurður
Greipsson sýndi.
Ég á ekki mjög sterkar minningar um
það stolt sem gagntekur sigurvegarann
þegar verðlaunaafhendingin fór fram.
Það var auðvitað gaman að fá þessi
verðlaun en við fundum öll að við
hefðum getað gert betur. Það skyggði
svolítið á gleðina, en þennan
verðlaunapening geymi ég enn.
En þannig var það að ef menn voru í
veikum riðli þá lögðu þeir sig ekki alla
fram. Menn höfðu ekki neina
keppnisreynslu.”
Finnst þér ungmennafélagar vinna af
sama krafti og þeir geröu á þessum
tíma?
„Fólkið nú hefur fengið allt aðra
skólagöngu en við fengum. Skólarnir
vanrækja félagsmálastörf og að láta
unglingana halda ræður og halda uppi
félagslífi. Oftast er það Iítil klíka sem
heldur uppi félagslífi í skólunum. Það
er mikill fjöldi ungmenna sem hefði
þurft að fá tækifæri til að kynnast og
vinna að félagsstarfi.
Svo má ekki gleyma því að nú hugsa
allir ntiklu meira um peninga en þá var
gert. Greiðsla fyrir þjálfun þekktist
ekki, það var ekki fyrr en um eða eftir
1950 sem maður vissi að farið var að
borga þjálfurum, greiða þeim
ferðakostnað og annað. Það sem mér
finnst að menn verði að gera sér grein
fyrir að ekki má glata hugsjóninni í
tilbeiðslu á mammon, en peningar eru
nauðsynlegir nú til dags.”
„Mér finnst ég standa í mikilli
þakkarskuld við
ungmennafélagskapinn því ég held að
þar hafi ég tekið út fullt eins mikinn
þroska og þann sem ég fékk í skólum.
Félagið okkar var og er okkar hjartans
mál og ég finn hvað ég hef haft gott af
því að stilla mína strengi við aðra og
hafa sameiginleg áhugamál eins og
íþróttirnar og vinna sameiginlega að
settu marki. Þarlærði ég að meta þjóðleg
verðmæti og bera virðingu fyrir íslenska
fánanum. Kveðjan „Islandi allt” varð
okkur töm á tungu og er jafnvel enn.”
Sigurlið UMSK a Landsmótinu í Haukadal 1940.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Sveinn Guðmundsson, Reykjum (A), Guðmundur Jónsson, Sogni (D), Gísli Andrésson,
Hálsi (D), GuðmundurÞ. Jónsson, Laxárnesi (D), EiríkurSigurjónsson, Sogni(D), Sigurjón Jónsson, Hvítanesi (D), Davíð
Guðmundsson, Miðdal (D), Alexíus Lúthersson, Ingunnarstöðum (D), Sesselja Erlendsóttir, Álafossi (A), Jón M.
Guðmundsson, Reykjum (A), Sesselja Gunnlaugsdóttir, Laugabóli (A), UnnurSveinsdóttir, Álafossi(A), Njáll Guðmundsson,
Miðdal (D), GrímurS. Norðdahl, Úlfarsfelli (A), Skúli Norðdahl, Úlfarsfelli (A), Janus Eiríksson, Óskoti (A), Axel Jónsson,
Hvítanesi (D), Karl Jónsson, Hrísbrú (A).
A = Umf. Afturelding, Mosfellssveit.
D = Umf. Drengur, Kjós.
Skinfaxi
21