Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 23
V I Ð T A L
fþróttir fyrir börn
Litli íþróttaskólinn er starfræktur frá
15.júlí til 13. ágúst. Þar gefst krökkum
á aldrinum 10-12 ára kostur á að kynnast
ogtakaþátt ífjölmörgum íþróttgreinum
undir stjórn færustu leiðbeinenda og
auk þess koma þekktir íþróttamenn í
heimsókn. Krakkarnir fá hollan og
góðan mat, fara í fjallgöngur, bátsferðir
og skemmta sér á kvöldvökum.
I sumar hafa dagsferðir fyrir börn verið
vinsælar. Sumir hóparnir liafa komið
rétt fyrir hádegið, valið sér góðan stað
til aðgrillaá,enhægteraðfálánaðgrill.
Krakkarnir hafa farið í gönguferðir upp
í hlíðar Laugarvatnsfjalls til að skoða
hellana, trén, jurtirnar og fuglana. Þau
hafa kynnst íþróttahúsinu, farið í leiki á
grasflötunum og notið þess að kynnast
náttúrunni fjarri skarkala þéttbýlisins.
Laugarvatn er ákjósanlegur staður til að
kynna börnum fjölbreytt náttúrulíf
landsins.
Önnur þjónusta
Menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af að
geta ekki borgað reikningana sína
meðan þeir dvelja á Laugarvatni. A
staðnum er banki, pósthús,
matvöruverslun, bíla- og
dekkjaverkstæði og hægt er að fá ferska
ávexti og grænmeti úr gróðrastöðinni.
Agætis tjaldstæði er á Laugarvatni,
hestaleiga er ekki langt undan og hægt
er að útvega veiðileyfi í ám og vötnum
í nágrenninu.
Leggjum áherslu á aö
uppfylla óskir gesta
- segir Þráinn Hafsteinsson, framkvæmdastjóri íþróttamiðstöðvar íslands
Þréinn Hafsteinsson, íþróttakennari er framkvæmdastjóri íþróttamióstöövar
íslands. Þráinn hefur starfað sem íþróttakennari við íþróttakennaraskóla
ísiands síðan 1986. Ritstjóri Skinfaxa ræddi við Þráin um starfsemi
íþróttamiðstöðvarinnar í sumar og vetur.
Þráinn sagði að starfsemin hefði farið vel afstað og aðsóknin væri sífellt að
aukast. „Þessi staður er kjörinn fyrir svo margskonar athafnir. Það er sama
hvort menn vilja fínpússa tækni, efla iiðsanda, skerpa einbeitingu, efla þol og
kraft, læra af öðrum, kenna eða miðla. Starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar
veitir tækifæri til að ná settu marki. Oftast hafa leiðbeinendur eða þjálfarar
komið með hópunum, en við leggjum áherslu á að uppfylla allar óskir
dvalargesta og útvegum einnig þjálfara efsvo ber undir. Ég stefni að því að
hafa opna skrifstofu allan daginn þarsem fólkgeturleitað upplýsinga efá þarf
að halda ogjafnvel komið beint inn afgötunni án þess að panta og fengið þá
þjónustu sem það vill. Við höfum gistiaðstöðu fyrir 60 -75 manns í4-5 manna
herbergjum, ogþað ermöguleiki að koma fleirum fyrir efþörfkrefur, alltað 90
manns. Boðið erupp fyrsta flokks fæði, þrjármáltíðirá dag, oglipra þjónustu,"
sagði Þráinn
Hvað er boðið upp á í
sumar og vetur?
Útivistarhelgi -
Heilsuvika.
„Sérstök útivistarhelgi verður 21.-22.
júlí í sumar, þar sem boðið verður upp á
fjölmarga valmöguleika fyrir alla
fjölskylduna. Helgin er meðal annars
ætluð til að hvetja til aukinnar útveru og
líkamsræktar almennt.
í sumar hyggst íþróttamiðstöðin bjóða
gestum hótelanna, sumarbústaðafólki
og öðrum sem koma á Laugarvatn,
ákveðna íþróttatíma, þar sem boðið
verður upp á leikfimi, tennis, golf,
göngu, skokk, kraftþjálfun í tækjasal,
sund o. fl. Þreksalurinn verður einnig
opinn fyrir almenning um helgar og á
kvöldin.
Næsta vetur verður boðið upp á
svokallaðar Heilsuvikur. Þar verður
hinum almenna borgara boðið að koma
á Laugarvatn til hressingardvalar.
Fræðsla verður veitt um hvernig sinna
megi líkamsrækt á fullorðinsárum.
1 vetur er einnig áætlað að reka
íþróttabúðir fyrir grunn- og
framhaldsskólanema. Um verður að
ræða skólabúðir sem verða sérhæfðar á
Skinfaxi
23