Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 24
VIÐTAL
Áhugasamir foreldrar úr Fylki fylgjast með
sviði íþrótta, útilífs, heilsu- og
næringarfræði og félagsmála.
Vetraríþróttir
Skautasvell - Gönguskíöi
í vetur verður íþróttaaðstaðan sniðin að
þörfum vetraríþróttamanna.
Sérstakt upplýst skautasvell verður á
Laugarvatni. Göngustígarnir verða
troðnir fyrir gönguskíðamenn og
skíðalyftan í hlíð Laugarvatnsfjalls
notuð eins og tækifæri gefst til. Þá eru
skipulagðar ferðir á vélsleðum inn á
hálendið allan ársins hring.”
en fara til útlanda. 3. fl. ÍK hefur farið
annað h vert ár til útlanda, en ég er al veg
á móti þessum utanlandsferðum.
Ferðirnar eru dýrar og það er hægt að
gera sömu hluti hér heima og jafnvel
enn betur. Það eiga ekki allir kost á því
að eyða tugum þúsunda í æfingaferðir
erlendis. Eg fór hingað þegar ég var í
drengjalandsliðinu 1975/1976, sú ferð
gerði okkur mjög gott og þess vegna
lagði ég áherslu á að strákarnir færu
hingað.
Það lyftir strákunum mikið upp að fá að
koma saman og einbeita sér alfarið að
fótboltanum. Það er auðveldara að leika
á grasi, hér er sól og vart hægt að hugsa
sér það betra. En við höfum það í
bakhöndinni að ef íslenska sumarveðrið
kemur getum við lfka fengið að vera
inni að æfa.”
Ur 4. og 6. fl. Fylkis í Arbænum voru
hvorki fleiri né færri en 36 strákar við
æfingar í knattspyrnu. Þjálfari þeirra
var Gunnar Baldursson, en nokkrir
foreldrar komu einnig með.
Ég spurði foreldrana hvers vegna þeir
hefðu komið með í æfingabúðirnar.
Þau sögðust koma með strákunum til
að aðstoða og hjálpa til. Mikill áhugi
væri fyrir fótbolta í Arbænum og lífið
gengi út á fótbolta hjá mörgum,
sérstaklega þar sem sumir foreldrar ættu
börn í öllum flokkum. Þau sögðu að
þessi ferð styrkti liðsheildina gífurlega.
Gunnar þjálfari sagði að sér fyndist
alveg frábært að koma á Laugarvatn og
fara á gras án þess að vera skammaður,
eins og hann orðaði það. „I bænum þarf
að passa grasblettina mjög vel. Við
höfum ekki fengið að fara á gras ennþá,
þannig að þetta er frábær aðstaða og við
komum örugglega aftur,”sagði Gunnar.
Hvers vegna
Laugarvatn?
Þegar Ritstjóri Skinfaxa var á ferð á
Laugarvatni fyrir stuttu voru IK- og
Fylkismenn við æfingar á grasflötunum.
Eg ræddi stuttlega við þjálfara liðanna
og nokkra foreldra sem höfðu komið
með til að'hjálpa til.
Frá Iþróttafélagi Kópavogs voru 14
strákar úr 3. flokki undir stjórn Ómars
Jóhannssonar þjáifara. Ég spurði hann
hvers vegna þeir hefðu farið í
æfingabúðir á Laugarvatni. „Við
komum hingað til að undirbúa okkur
fyrir Islandsmót, það er nauðsynlegt að
hrista þá saman”, sagði Ómar. Aðstaðan
hér er mjög góð og ég er mjög ánægður
með þetta og vi 1 frekar fara hingað heldur
Ómar Jóhannsson þjálfari ÍK að þjálfa einn pilta sinna
24
Skinfaxi