Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 29
V I Ð T A L
Uppbygging og
umhirða grasvalla
Rætt við Dr. Bjarna Helgason og Dr. Árna Bragason
Á undanförnum árum hafa þeir Dr.
Bjarni Helgason jarðvegsfræðingur
og Dr. Árni Bragason jurtaerföa-
fræðingur veitt ýmsum aðilum
leiðbeiningar varðandi umhirðu
grasvalla. Skinfaxi hafði samband
við þá félaga til að fræðast nánar um
í hverju ráðgjöf þeirra væri fólgin.
Hvernig hófust afskipti ykkar af
grasvöllum?
Upphafið að þessari ráðgjöf, að sögn
Bjarna, má rekja til þess að kunningi
hans og fyrrverandi skólafélagi i
Bretlandi Dr. V. Stewart. gerðist
ráðgjafi um ræktun fótboltavalla margra
stærstu fótboltafélaga á Suður Englandi.
Dr. Stewart spurði hvort menn spiluðu
ekki golf og knattspyrnu á grasvöllum
á Islandi og sló því fram að það hlyti að
vera meiri erfiðleikum bundið en víðast
annars staðar. Upp úr þessu fór Bjarni
að hugleiða þessi mál, eitt leiddi síðan
af öðru og fyrstu afskipi hans voru síðan
afgolfvellinum íGrafarholtifyrirmeira
en 20 árum. Samstarf Arna og Bjarna
hófst síðan þegar Bjarni kom heim frá
námi árið 1984.
Hver eru helstu viðfangsefni ykkar?
Viðfangsefni okkar hafa verið
mismunandi, allt frá því að vera
ráðgefandi við frumhönnun og efnisval
við uppbyggingu vallanna, yfir í að
reyna að bæta úr þegar ræktun hefur
verið komin í óefni.
Það munu vera yfir 20 knattspyrnu- og
golfvellir sem við höfum haft einhver
afskipti af og á 15 velli komum við
reglulega.
Hver eru helstu vandamálin?
Margir sem til okkar hafa leitað eru
fyrst og fremst með áburðarvandamál í
hugaog vissulegaerrétt áburðarnotkun
grundvallaratriði, það þarf þó miklu
meira til en áburð.
Við notkun allra grasvalla verða
ákveðnar breytingar á jarðvegi, hann
þéttist og það leiðir síðan til
gróðurfarsbreytinga, fjölærar
grastegundir verða undir, en við tekur
einært gras, varpasveifgras.
Varpasveifgrasið hefur mjög grunnstætt
rótarkerfi og er þar af leiðandi mjög
viðkvæmt gagnvart sliti og umhirðu.
Leiðbeiningar okkar miða að því að
tefjafyrirþessari þróunog lengjaþannig
líftíma grasvallanna. Því miður eru
ekki til allsherjarlausnir.
Allt of víða hefur ofnotkun átt sér stað.
Grundvallaratriði er að þurrt sé þegar
álagiðermikið, þvíaðblauturjarðvegur
klessist margfalt nteira en þurr.
Nauðsynlegt er að allt sé skráð varðandi
vellina, notkun, áburðargjöf og sláttur
svo að hver og einn aðili geti dregið
lærdóm af. Mikilvægt er að einn aðili
sé ábyrgur og hafi vald til ákvarðanatöku
varðandi allt sem að vellinum lýtur.
Eitt af mörgum atriðuin sem við höfum
rekið okkur á og viljum sérstaklega
nefna er að öll tæki, sem nota þarf við
ræktun og viðhald vallanna, eru mjög
sérhæfð og dýr. Því sýnist okkur
nauðsynlegt að komið verði á samstarfi
varðandi kaup og viðhald sumra þessara
tækja.
Dr. Bjarni Helgason og
Dr. Árni Bragason
Varaformaður UMFÍ
ekki lengur á lausu
Sá merkilegi atburður átti sér sjiaö 2.
júní sl. að varaformaður UMFI, HSK
maðurinn Þórir Haraldsson gekk í
það heilaga. Sú heppna er Guðrún
Tryggvadottir og er hún sem betur fer
líka úr HSK, annars er aldrei að vita
hvað gæti gerst.
Skinfaxi
29