Skinfaxi - 01.05.1990, Qupperneq 32
G R E I N
Evrópumót almenningsíþrótta
6. - 9. júní 1991
Hermann Níelsson skrifar
H e r m a n n
N í e I s s o n
íþróttakennari
stundaði nám
við íþrótta-
k e n n a r a -
h á s k ó I a
Svíþjóðar
1981 - 1982 og tók almennings-
íþróttir sem valfag. Hann hefur
meðal annars starfað í 11 ár í
Trimmnefnd ÍSÍ. í þessum pistii
gefur Hermann lesendum Skinfaxa
skýrsiu um “Ólympíuleika
almenningsíþrótta ”.
Evropasportfestivalen, svokallaðir “Ólym-
píuleikar almenninsgíþrótta verða haldnir í
Svfþjóð6.-9.júní 1991.Þettaeru8.1eikarnir,
en þeir fara fram annað hvert ár til skiptis í
aðildarlöndunum. Það eru íþróttafélög
starfsfólks fyrirtækja og stofnana sem mynda
með sér samtök í hverju landi og þau síðan
innan Evrópu. Norðurlöndin hafa lengi haft
samvinnu á þessu sviði að okkur Islendingum
undanskyldum. Markmið keppninnar er að
stuðla að hollri hreyfingu og heilbrigðum
lífsháttum. Að vera með íþessum leikum er
aðalatriðið og þar hittist fólk frá ýmsum
löndum með sameiginlegan lífsstíl sem felst
í því að skemmta sér við iðkun íþrótta,
útivist, söng og þjóðdansa á kvöldvökum.
Úrslit í einstökum greinum eru tilkynnt
jafnóðum en síðan eru verðlaun dregin út
sem geta fallið hvaða þátttakanda sem er í
skaut. Þannig eráhersla lögð á ánægjuna og
gleðina sem fylgir þátttökunni. Meðal
keppnisgreina og annarra greina, sem ekki
fela í sér keppni eru: Badminton, mínígolf,
körfuknattleikur, borðtennis, skák, bridds,
handbolti, fótbolti, bæði 7 manna og 11
manna lið, frjálsar íþróttir, sund, blak, tennis,
siglingar og fleiri greinar bæði fyrir karla og
konur. Auk þessaerboðið upp á stangveiði,
gönguferðir, hópleikfimi, skoðunarferðirog
fleira þessháttar utan keppni. Islendingar
eru duglegt fólk og fjölmargir eru
þátttakendur í íþróttum og hollri hreyfingu.
Margt bendir þó til þess að iðkunin sé
tímabundin og í skorpum, en ekki jöfn og
regluleg árið um kring. Að því þurfum við
að vinna og jafnframt stækka þann hóp landa
okkar sem setur heilbrigða lífshætti efst á
blaðið hjá sér. Það fer mikið í vöxt að
fyrirtæki greiði tíma fyrir starfsfólk sitt í
íþróttahúsum, sundlaugum og líkamsræktar-
stöðum, vilji það stunda einhverjar fþróttir.
Ástæðan er sú að skilningur er á því meðal
forsvarsmanna fyrirtækja að hraustur og
heilbrigðurstarfsmaðurerbetri starfskraftur.
Á Norðurlöndum eru til sérsambönd innan
íþróttasamtakanna sem skipuleggja
almenningsíþróttir, bæði meðal starfsfólks
á vinnustöðum, en einnig og ekki síður fyrir
aðra hópa í þjóðfélaginu sem vilja vera með
í skipulögðu starfi en samt ófélagsbundið, ef
þaðhentarbetur. Síðastliðin þrjú Iþróttaþing
ÍSI hefur farið fram umræða um stofnun
sérsambands um almenningsíþróttir, en því
miðurhefuráhugifulltrúa veriðtakmarkaður
og tillögum þess efnis vísað til nefnda og
síðan frá. Skilningurábetraskipulagi íþrótta
fyrir hinn almenna borgara hefur aukist,
enda full þörf á aukinni fræðslu og þjónustu
á þessu sviði. Stofna þarf sérsamband um
þessi mál sem ásantt aðildarhópum sínum
og væntanlegum starfsmönnum einbeiti sér
að þjónustu og fræðslu til almennings á sviði
hollrar hreyfingar og heilbrigðra lífshátta.
Á stórsýningu sem haldin var í Svfþjóð í
apríl voru Ólympíuleikar almenningsíþrótta
kynntir og þar var einnig kynning á þjónustu
félaga, stofnana og fyrirtækja sem bjóða
þátttöku í líkamsrækt, framleiðslu á hollri
fæðu og allskyns tækjum. Fengin var heimild
Evrópunefndarinnar til að bjóða okkur
Islendingum að verameð.einstökum hópunt
eða sem heild þótt ekki værum við aðilar að
Norrænu- eða Evrópusamtökunum, sem
halda þessa hátíð. Þetta er stórkostlegt
tækifæri og gæti verið fyrsta skrefið til aðildar
að fyrrnefndum samtökum. Að upplifa 6000
manna Íþróttahátíð með setningarathöfn,
keppni í íþróttum eðaþátttöku ígönguferðum
tafli, eða stangveiði, kvöldvökur með spjalli
og dansi í hópi fólks frá ýmsum löndum með
sameiginlegan lífsstíl hlýtur að vera eitthvað
fyrir mörg okkar. Við skulum taka boðinu
og fara saman til þátttöku íhinum svokölluðu
Ólympíuleikum almennings í Norrköping í
Svíþjóð 6.-9. júní 1991.
AllarupplýsingarumleikanagefurHermann
Níelsson Bláskógum 10, sími 97-11902.
32
Skinfaxi