Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 33
G R E I N
ÍKÍ að íþróttaháskóla?
Ný stefna um málefni staðarins, verður hún að veruleika?
íþróttirnar verða þungamiðja
menntunar og starfsemi á Laugarvatni
sagði Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra á fundi, sem haldinn var á
Laugarvatni 15. mars s. 1. um málefni
skólanna á Laugarvatni. Menntamála-
ráðherra leggur til að skólarnir á
Laugarvatni sérhæfi sig enn frekar á
sviði íþróttamenntunar og að staðurinn
sem slíkur og starfsemi þar verði að
langmestu leyti sérhæfð við íþróttir og
útiveru, heilbrigði og heilsurækt ásamt
hússtjórnarfræðslu og umhverfis-
málfræðslu. Menntamálaráðherra
leggur til að rekstrarleg stjórn skólanna
verði sameinuð, en faglegar einingar
lúti faglegri stjórn.
Samkvæmt stefnu menntamálaráðherra
er lagt til að þungamiðja náms við
Menntaskólann á Laugarvatni verði á
sviði íþrótta og heilbrigðis, heilsufræði,
næringarfræði og þeirra greina sem
skyldar eru. Einnig verði sérstakar
námsbrautir í hússtjórnar- og
heimilisfræðslu og aðrar er hafi
umhverfismálafræðslu að megin-
markmiði. Nemendur geti þó, eins og
verið hefur, lokið stúdentsprófi af
bóknámsbraut.
Iþróttakennaraskóli Islands verður
gerður að Iþróttaháskóla íslands ef stefna
þessi ummálefni Laugarvatnsnærfram
að ganga, þar sem útskrifaðir yrðu
íþróttakennarar er gætu kennt á öllum
skólastigum. Einnig yrðu menntaðir
íþróttaþjálfarar og leiðbeinendur sem
starfa myndu fy rir íþóttahreyfinguna eða
við forystustörf á sviði íþróttamála
annarsstaðar í þjóðfélaginu.
Háskólanám þetta yrði metið til 60-90
eininga og yrði í nánum tengslum við
nám í Háskóla Islands og
Kennaraháskóla Islands.
Lagt er til að fjölþætt námskeiðahald á
sviði íþrótta, félags- og æskulýðsmála
verði rekið í Iþróttamiðstöð Islands og
gott samstarf haft við Iþróttaháskólann
og Menntaskólann á Laugarvatni.
Mynd frá skólaslitum Í.K.Í. 2. júní 1990
Áframhald á þeirri uppbyggingu
mannvirkja sem þegar er hafin á
Laugarvatni verður miðuð við þessa
stefnu og stórbætt nýting yrði á aðstöðu
sem hefur ekki verið nægilega nýtt, t. a.
m. á aðstöðu þeirri sem fyrir hendi er til
hússtjórnarfræðslu.
Ráðherra skýrði frá því að í bígerð væri
að ráða sérstakan starfsmann í
ráðuneytið til að vinna að undirbúningi
frumvarps að lagasetningu um framtíð
Laugarvatns, þarsem þungamiðjaallrar
menntunar og starfsemi á staðnum væru
íþróttir.
Góða skemmtun á
Landsmóti UMFÍ
Kassagerð Reykjavíkur
íslenskir Aðalverktakar s.f.
Sparisjóðurinn í Keflavík, Grindavík,
Njarðvík og Garði
Sementsverksmiðja ríkisins, Akranesi
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
Skinfaxi
33