Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.05.1990, Blaðsíða 34
FASTI R ÞÆTTI R Bama-þátturinn Halló krakkar. Þakka ykkur fyrir bréfin sem þið hafið sent mér. Ég hef hins vegar ekki fengið eina einustu vísu, en ég vona að þið bætið úr því áður en næsta blað kemur út. Nú nýlega var valið nafn á fuglinn sem er tákn 20. Landsmóts UMFÍ, sem haldið verður 12.-15. júlí í sumar. Ung stúlka Kristín Þorsteinsdóttir úr Hrútafirði sendi dómnefndinni besta nafnið. Um 1000 tiliögur bárust, en nafnið sem Kristín valdi er Goggi gal vaski og það var enginn annar krakki sem kom með sömu tillögu. Hér í Barnaþætti Skinfaxa fræðumst við nánar um þennan unga sigurvegara, Kristínu Þorsteinsdóttur. Kristín Þorsteinsdóttir er 12 ára frá Reykjum í Hrútafirði. Hún stundar íþróttir með Ungmennaféláginu Dagsbrún í Hrútafirði. Foreldrar hennar heita Þorsteinn Sigurjónsson og Aðalheiður Böðvarsdóttir og Kristín á þrjú systkini. Helstu áhugamál eru: Hestar, tónlist, frjálsar íþróttir og fótbolti. Kristín á einn hest sem heitirRauður. Uppáhalds íþróttamaðurinn er bandaríska frjálsíþróttakonan Florence Griffith Joyner. I sumarfríinu ætlar Kristín að vera fimm daga í sumarbúðum að Hólum í Hjaltadal. Hún hefur aldrei farið á Landsmót UMFl, en ætlar alveg örugglega að fara á Landsmótið í Mosfellsbæ í sumar. En hvað ætlar Kristín að gera við 25 þúsund kónurnar sem hún fékk í verðlaun fyrir nafnið á fuglinn? Hún ætlar ekki að kaupa sér föt, hún ætlar að leggja verðlaunaféð í banka. Pennavinaþáttur Þeir sem vilja eignast pennavini geta sent nafnið sitt og heimilisfang, ásamt helstu áhugamálum til Barnaþáttar Skinfaxa Öldugötu 14, 101 Reykjavík og verður þá nafnið birt í Skinfaxa og vonandi fylgja einhverjir pennavinir í kjölfarið. Getraun ísíðastblaðiSkinfaxa l.tbl. 1990hófst getraunakeppni fyrir böm. Nú birtist síðari hluti getraunarinnar og ég skora á ykkur að vera með. Verðlaun fyrir rétt svör í báðum hlutum keppninnar verða allient á 20. Landsmóti UMFÍ12. -15. júlí í Mosfellsbæ. Kistír Þorsteinsdóttir Smásagnasamkeppni Barnaþátturinn leitar nú að góðum höfundi að smásögu. Sagan verður að vera stutt og gæti verið um allt milli himins og jarðar. Sagan gæti t. d. verið unt krakka sem fær að keppa í fyrsta sinn á stóru íþróttamóti og gengur e. t. v. svolítið illa, en allt fer vel að lokum. Ritsnillingar sendið Barnaþættinum söguna ykkar. Heiiræði Barnasíðunnar eru: Þegctr eitthvað gengur ekki eins vel og þú œtlaðir, hertu þú upp hugann og reyndu hara aftur. Bestu kveðjur, Una Mæja Getraun 1. Hvaða íslendingar hafa unnið til verðlauna á Olympíuleikum? 2. Hvar býr og starfar, spjótkastarinn Iris Grönfelt? 3. Fyrir hvað stendur skammstöfunin UÍA? 4. Hvaða ár kom Skinfaxi fyrst út? 5. Hvaða þekktur stjórnmála- maður hefur verið ritstjóri Skinfaxa? Krakkar frá dagheimilinu Hlíð í Mosfellsbæ 34 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.